Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 20. janúar 2026 09:10 Fjöldi Íslendinga hefur lagt leið sína til Kristianstad til að fylgjast með íslenska karlalandsliðinu í handbolta á EM. EPA/Johan Nilsson Sænska lögreglan hafði afskipti af þremur íslenskum karlmönnum fyrir drykkjulæti í Kristianstad í Svíþjóð á laugardaginn var. Mennirnir voru í haldi lögreglu í nokkrar klukkustundir en voru síðan látnir lausir. Þetta staðfestir upplýsingafulltrúi lögreglunnar í Kristianstad í samtali við Vísi.
Fram kom í fréttum í gær að íslenskur stuðningsmaður karlalandsliðsins í handbolta hafi verið handtekinn í Kristianstad, þar sem riðill Íslands á Evrópumótinu í handbolta fer fram. Ekki fylgdi þá sögunni af hverju viðkomandi hafi verið handtekinn en utanríkisráðuneytið staðfesti að eitt mál hafi komið inn á borð borgaraþjónustunnar í tengslum við EM í handbolta. Samkvæmt upplýsingum frá sænsku lögreglunni er þó enginn Íslendingur þar í varðhaldi sem stendur, en lögregla hafði afskipti af nokkrum Íslendingum um helgina vegna ölvunar. „Það var á laugardaginn, 17. janúar, sem þrír íslenskir karlmenn voru teknir í varðhald fyrir að vera fullir,“ segir Thomas Johansson, talsmaður lögreglunnar á svæðinu í samtali við Vísi. Mennirnir hafi aftur verið frjálsir ferða sinna eftir nokkra klukkutíma í varðhaldi og enginn Íslendingur sé í gæsluvarðhaldi. Að öðru leyti er Johansson ekki kunnugt um önnur lögreglumál þar sem Íslendingar hafa komið við sögu í tengslum við EM. Nokkur þúsund Íslendingar hafa lagt leið sína til Kristianstad til að fylgjast með landsliðinu en svo virðist sem íslenskir aðdáendur hafi að mestu leyti hagað sér vel framanaf móti. „Eftir því sem ég best veit hefur annars verið frekar rólegt,“ segir Thomas. Ísland spilaði sinn fyrsta leik á mótinu á föstudagskvöldið og leikur númer tvö fór fram á sunnudaginn. Ísland mætir síðan Ungverjalandi í hreinum úrslitaleik í F-riðli í kvöld, áður en liðið heldur áfram til Malmö þar sem milliriðill Íslands keppir.
Íslendingar erlendis Svíþjóð EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Sjá meira