Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Kjartan Kjartansson skrifar 22. janúar 2026 15:32 Sósíalistar færðu sig yfir í húsnæði Menningartengsla Íslands og Rússlands (MÍR) á Hverfisgötu eftir að Vorstjarnan rak flokkinn úr fyrra húsnæði í Boltholti eftir átakaaðalfund í fyrra. Sósíalistaflokkurinn Tvö félög sem tengjast fyrrum stjórn Sósíalistaflokksins fengu yfir tuttugu milljónir króna frá flokknum árið 2024, bróðurskerfinn af tekjum hans það ár. Flokkurinn eyddi tæpum tíu milljónum króna í baráttuna fyrir alþingiskosningar.
Hatrammar deilur geisuðu hjá Sósíalistaflokksins í kringum aðalfund sem var haldinn í maí í fyrra. Í þeim var meðal annars deilt um réttmæti þess að undir þáverandi stjórn hefði flokkurinn veitt öllum styrkjum sem hann fékk til Samstöðvarinnar annars vegar og Vorstjörnunnar hins vegar, félags sem var sagt ætlað að styrkja baráttu í samfélagsmálum. Gunnar Smári Egilsson, ábyrgðarmaður Samstöðvarinnar og þáverandi formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, og fylking hans varð undir á aðalfundinum. Í kjölfarið úthýsti Vorstjarnan, sem laut stjórn bandamanna hans, flokknum úr húsnæði hans í Bolholti. Félagið hafði leigt flokknum húsnæðið og Samstöðinni sömuleiðis. Framlögin skráð sem lán og rekstrarkostnaður Framlag Sósíalistaflokksins til Samstöðvarinnar er skráð sem rúmlega 12,2 milljóna króna lán í ársreikningi flokksins fyrir árið 2024 sem Ríkisendurskoðun hefur staðfest. Lánið er sagt vaxtalaust og með breytirétti í hlutafé til Samstöðvarinnar. Rúmlega 9,7 milljónir króna sem Sósíalistaflokkurinn færði Vorstjörnunni eru taldar fram undir rekstrarkostnaði við „kynningar, fræðslu- og baráttumál“. Til frekari skýringar segir að féð sé til reksturs baráttu, fræðslu- og kynningarmiðstöðvar. Saman fengu Samstöðin og Vorstjarnan þannig tæpar 22 milljónir króna frá Sósíalistaflokknum árið 2024. Það er langstærsti hlutinn af þeim um 26,5 milljónum króna sem flokkurinn fékk í styrki frá ríkissjóði og sveitarfélögum það ár. Árið 2023 lánaði flokkurinn Samstöðinni vaxtalaust um 15,5 milljónir króna og greiddi Vorstjörnunni tæpar 12,3 milljónir króna. Engin framlög sem námu hámarki Sósíalistar hlutu fjögur prósent atkvæða í alþingiskosningunum í nóvember 2024. Flokkurinn varði rétt tæpum tíu milljónum króna í kosningabaráttuna samkvæmt ársreikningnum. Stærsti hluti kostnaðarins fólst í kaupum á auglýsinga- og kosningavörum, um 4,6 milljónir. Langstærsti hluti tekna flokksins var 24,5 milljóna krónar styrkur úr ríkissjóði. Þar á eftir komu framlög frá einstaklingum upp á 6,1 milljón króna. Ekkert þeirra var yfir 300.000 krónum. Þá styrkti Reykjavíkurborg flokkinn um 1,9 milljónir króna en hann átti þá tvo borgarfulltrúa. Aðeins fjórir lögaðilar styrktu Sósíalistaflokkinn árið 2024. Á meðal þeirra var útgáfufélag Vikublaðsins á Akureyri sem er að mestu leyti í eigu KEA. Stærsta einstaka framlagið var frá félaginu Stórveldinu í Vesturbænum efh. sam gaf flokknum hundrað þúsund krónur. Það er skráð á Sigurð Haraldsson. Sanna Magdalena Mörtudóttir og Trausti Breiðfjörð Magnússon voru borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins en voru hvort í sinni fylkingunni á aðalfundi í fyrra. Trausti hætti sem borgarfulltrúi og Sanna er ekki lengur borgarfulltrúi flokksins.Sósíalistaflokkurinn Lögbundið hámarksframlag einstaklinga og lögaðila til stjórnmálaframboða er 550.000 krónur. Átta milljóna króna afgangur var af rekstri Sósíalistaflokksins árið 2024. Eigið fé hans nam 27,5 milljónum króna en haldbært fé tæplega 840 þúsund krónum við lok ársins.
Sósíalistaflokkurinn Alþingiskosningar 2024 Uppgjör og ársreikningar Styrkir til stjórnmálasamtaka Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sjá meira