Willum fer ekki fram og styður Lilju Eiður Þór Árnason skrifar 22. janúar 2026 20:48 Willum Þór Þórsson, fyrrverandi þingmaður Framsóknar, þakkar fyrir áskoranirnar en segir þetta ekki rétta tímann. Vísir/Vilhelm Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra og núverandi forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), ætlar ekki að gefa kost á sér í formannssæti Framsóknarflokksins. Þess í stað styður hann Lilju Dögg Alfreðsdóttur varaformann.
Lilja og Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður flokksins, hyggjast báðar gefa kost á sér á komandi flokksþingi Framsóknar í febrúar. Vilja þær taka við af Sigurði Inga Jóhannssyni, sitjandi formanni, sem sækist ekki eftir endurkjöri. „Íþróttahreyfingin hefur í gegnum tíðina spilað stórt hlutverk í mínu lífi. Mér var sýndur sá heiður og traust, á síðasta ári, að vera kjörinn forseti ÍSÍ til næstu fjögurra ára,“ skrifar Willum í færslu á Facebook-síðu sinni. „Nú liggur það fyrir að Framsókn þarf að kjósa sér nýja forystu og hef ég fengið áskoranir um að bjóða mig fram til formennsku. Eftir töluverða umhugsun hef ég komist að þeirri niðurstöðu að einbeita mér að því að rísa undir því trausti sem ég hef verið kjörinn til og nú er því ekki rétti tímapunkturinn til þess að bjóða mig fram til forystu í Framsókn,“ bætir Willum við. Hann segist þakklátur fyrir traustið. Nú þurfi Framsókn á sterkri forystu að halda. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um framboð Lilju.
Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Tengdar fréttir Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi menningar- og viðskiptaráðherra, ætlar að gefa kost á sér í formannssæti flokksins. Þetta tilkynnti hún á félagsfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur sem fram fór á Hilton Reykjavík Nordica í kvöld. 22. janúar 2026 21:15 Ingibjörg býður sig fram í formanninn Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, gefur kost á sér til formanns Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi Framsóknar í febrúar. Ingibjörg greinir frá framboði sínu á samfélagsmiðlum nú í morgun. Hún segir stöðu flokksins kalla á breytingar og að sjálf sé hún tilbúin til að bretta upp ermar. 20. janúar 2026 09:39 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Sjá meira
Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi menningar- og viðskiptaráðherra, ætlar að gefa kost á sér í formannssæti flokksins. Þetta tilkynnti hún á félagsfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur sem fram fór á Hilton Reykjavík Nordica í kvöld. 22. janúar 2026 21:15
Ingibjörg býður sig fram í formanninn Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, gefur kost á sér til formanns Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi Framsóknar í febrúar. Ingibjörg greinir frá framboði sínu á samfélagsmiðlum nú í morgun. Hún segir stöðu flokksins kalla á breytingar og að sjálf sé hún tilbúin til að bretta upp ermar. 20. janúar 2026 09:39