„Það átti að taka mig í karphúsið“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. janúar 2026 20:02 Árni íbúi Hólahverfis í Breiðholti er í vandræðum vegna ásælni menntaskælinga í bílastæði sem tilheyra íbúum. Vísir/Bjarni Íbúi í Breiðholti er orðinn langþreyttur á bílastæðaskorti fyrir utan eigið heimili. Hann hefur orðið fyrir hótunum þeirra sem sækja bílastæðin og segir íbúa ráðþrota.
Í Breiðholtinu er nóg um að vera, íþróttafélag, líkamsræktarstöð, sundlaug, menntaskóli og grunnskóli, allt í sömu götu og bílastæði því af skornum skammti. Fyrir því hafa íbúar í fjölbýlishúsum að Austurbergi beint á móti Fjölbrautarskólanum í Breiðholti fengið að finna fyrir. Einn þeirra Árni Kjartansson segir ástandið núna hafa keyrt um þverbak. Upplifa sig ekki örugga „Það er alltaf að bætast við starfsemi hérna. Þeir byggja nýja álmu við fjölbrautaskólann fyrir nokkrum árum og það hefði þurft bílakjallara undir henni. Svo er þessi kappakstur sem við heyrum í hérna núna, það er þvílík keyrsla hérna.“ Þá hafi íbúum verið hótað þegar þeir hafi mótmælt notkun annarra á bílastæðunum og segir Árni íbúa ekki upplifa sig örugga. „Þetta er orðið mjög alvarlegt ef maður getur ekki vísað fólki frá án þess að vera hótað ofbeldi. Einu sinni voru tvær stelpur í bíl hérna, þær fóru bara yfir götuna aftur og komu með tvo gaura hérna til baka. Það átti að taka mig í karphúsið.“ Árni segir hótanirnar aldrei hafa endað með ofbeldi en segir það slæma tilfinningu að vera hótað fyrir utan eigið heimili. Íbúar hafi fengið nóg enda taki á að vita ekki hvort þeir geti fengið bílastæði fyrir utan eigið heimili. Það hafi áhrif á ferðafrelsi. „Það má alveg segja það að íbúar eru ráðþrota. Það er ekkert flóknara en það.“
Reykjavík Bílastæði Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira