„Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2026 19:51 Amine Adli og Marcos Senesi fagna sigurmarki Bournemouth en Adli skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. Getty/Ryan Pierse Það var gríðarlegur fögnuður hjá Bournemouth-mönnum í kvöld eftir að þeir tryggðu sér dramatískan 3-2 sigur á Liverpool með marki í uppbótartíma.
Bournemouth hafði misst niður 2-0 forystu en tókst að skora sigurmark á síðustu stundu. Þetta var nauðsynlegur sigur fyrir Bournemouth sem hefur nú náð í sjö stig í síðustu þremur deildarleikjum og er að komast aftur í gang eftir að hafa leikið ellefu leiki í röð frá byrjun nóvember til byrjun janúar án þess að fagna sigri í ensku úrvalsdeildinni. Marco Senesi, varnarmaður Bournemouth, var í samtali við Sky Sports eftir leik og hann var spurður um hvernig tilfinning það er að vinna á síðustu stundu: „Satt best að segja, ótrúlegt. Mér fannst við spila mjög góðan fyrri hálfleik og komast í 2-0, svo skoruðu þeir og jöfnuðu leikinn. Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur,“ sagði Marco Senesi. „Ótrúlegt því við þurftum á sigri að halda. Öll liðin fyrir neðan okkur eru að safna stigum, svo það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að vinna í dag gegn virkilega góðu liði eins og Liverpool. Þeir eru að standa sig frábærlega og þetta var góður leikur og í lokin náðum við í úrslitin,“ sagði Senesi. „Liðið stendur saman og leggur sig fram þótt við séum með nokkur meiðsli og mikilvægir leikmenn séu fjarverandi. Allir stíga upp og við náðum í mikilvæg úrslit í dag,“ sagði Senesi.
Enski boltinn AFC Bournemouth Liverpool FC Mest lesið Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Liverpool fær höfnun frá Brighton Enski boltinn „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Íslenski boltinn Brann náði í frábær úrslit ytra Fótbolti Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Fótbolti Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Elías Rafn hélt hreinu og Midtjylland í kjörstöðu Fótbolti „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Sjá meira