Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Smári Jökull Jónsson skrifar 27. janúar 2026 12:57 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist eiga í góðu samtali við Þórdísi Kolbrúnu um varnar-, öryggis- og utanríkismál. Vísir/Lýður Valberg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segist ekki hafa tekið ákvörðun um að skipa Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur sem sendiherra en sögusagnir þess efnis hafa verið á kreiki undanfarið. Hún segir að missir yrði af Þórdísi Kolbrúnu á þingi ef hún hyrfi til annarra starfa.
Í Bítinu í morgun sagði Páll Magnússon, fyrrum útvarpsstjóri og þingmaður Sjálfstæðisflokksins að miklar sögusagnir væru um það að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrum utanríkisráðherra og núverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, væri á leiðinni að verða sendiherra. „Þetta tek ég fram að voru sögusagnir í ákveðnum kreðsum. Ég myndi allavega ráðleggja ykkur að hringja í fréttastofuna ykkar á eftir og láta hana hringja í einhvern sem veit þetta,“ sagði Páll í Bítinu. Sjálf segir Þórdís í skilaboðum til fréttastofu að hún hafi engar ákvarðanir tekið um breytingar á sínum högum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir Þórdísi Kolbrúnu gegna mikilvægu starfi hjá Evrópuráðinu sem erindreki í málefnum úkraínskra barna og sagði eðlilegt að hún væri mátuð við ýmis verkefni erlendis sem og hér heima. „Það er litið til þeirra einstaklinga sem hafa staðið sig afburðavel í framkomu og málflutningi og þess vegna er mjög eðlilegt að það sé litið til hennar,“ sagði Þorgerður Katrín í samtali við fréttastofu. Hún sagðist ekki geta sagt til um það hvort Þórdís Kolbrún hafi lýst yfir áhuga á að gerast sendiherra en að hún sjálf hafi ekki tekið ákvörðun í þeim efnum. „Ég get ekki verið að ræða frekar svona vangaveltur við eigum gott samtal ég og Þórdís Kolbrún sem og aðrir sem ég á í samtali við um varnar og öryggismál og utanríkismál.“
Utanríkismál Sendiráð Íslands Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Fleiri bitnir af hundunum Innlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Innlent Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Erlent Vilja eyða óvissunni um bein Jónasar Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Skaðabótasjóður Trumps í hættu Erlent Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Erlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Lítið breyst á fimmtán árum Innlent Fleiri fréttir Vilja eyða óvissunni um bein Jónasar Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Sjá meira