„Mjög áhugaverð umræða“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 30. janúar 2026 22:25 Auður Daníelsdóttir er Forstjóri Orkunnar. vísir/bjarni Olíufélögin hafa brugðist illa við málflutningi ríkisstjórnarinnar sem hefur sagt þau bera að ábyrgðar vegna aukinnar verðbólgu. Framsetningin sé villandi og standist ekki skoðun.
Verðbólga hefur ekki mælst meiri frá því í september 2024 og stendur í fimm komma tveimur prósentum. Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir vaxtaákvörðun á miðvikudag en reiknað er með óbreyttum vöxtum eða hækkun um 0,25 prósentustig. Það sem hafði mest áhrif á vísitölu neysluverðs voru breytingar á vörugjöldum bifreiða og upptaka nýs kílómetragjalds. Fjármálaráðherra vísaði því á bug í gær að aukningin skýrðist af gjaldhækkunum ríkisstjórnarinnar vegna kílómetragjalds og sagði olíufélög bera ábyrgð vegna aukinnar álagningar. Forsætisráðherra tók undir það að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun og sagði ríkisstjórnina hafa búist við frekari lækkun á eldsneytisverði. „Þannig að ég set að hluta til ábyrgðina á olíufélögin. Hvað það varðar að passa sig þegar það kemur að verðlagningu. Ég veit að þau finna hitann af því.“ Í úttekt frá ASÍ sem kom út fyrr í mánuðinum segir að álagning olíufélaganna hafi aldrei verið hærri. Að þeirra mati ætti olíuverð að lækka enn frekar. Forstjóri N1 sagði í yfirlýsingu í dag að verð hafi verið lækkað meira en sem nemur niðurfellingu gjalda og að framsetning ríkisstjórnarinnar væri villandi. Álagning þeirra hafi ekki aukist. Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu, sagði í samtali við fréttastofu að málflutningur ríkisstjórnarinnar standist ekki skoðun og sagði það óábyrgt að slengja því fram að olíufélögin beri ábyrgð á verðbólgunni án þess að hafa gögn því til stuðnings. Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga sem á og rekur Orkuna, segir félagið alltaf keppast við að hafa verðið sem lægst. „Þetta er náttúrulega mjög áhugaverð umræða að fylgjast með. Auðvitað er þetta stórt mál fyrir okkur öll í þessu samfélagi. Bæði fyrir atvinnulífið og samfélagið í heild. Það sem snýr að Orkunni þá er verðið það sama á dælu og það var fyrir áramót. Að sjálfsögðu skiluðum við öllum þeim gjöldum sem voru lögð af um áramótin. Við stöndum á alveg sama stað og við gerðum fyrir áramót.“
Verðlag Bensín og olía Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Neytendur Efnahagsmál Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira