„Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Eiður Þór Árnason skrifar 31. janúar 2026 08:30 Ólafur og Dorrit þegar forseti Indlands heimsótti Háskóla Íslands árið 2019. Vísir/vilhelm Minnst er á Dorrit Moussaieff og Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forsetahjón, í tölvupósti sem sendur var til kaupsýslumannsins og barnaníðingsins Jeffrey Epsteins árið 2016.
Í tölvupósti frá rithöfundinum Deepak Chopra tilgreinir hann að „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi“ séu stödd á The St. Regis Aspen Resort lúxushótelinu í Colorado í Bandaríkjunum þar sem Chopra muni leiða hóp fólks inn í hugleiðslu. Nýr skammtur af skjölum sem hafa verið til rannsóknar í tenglsum við mál Epsteins var birtur opinberlega í gær af bandaríska dómsmálaráðuneytinu eftir að þingið fór fram á víðtæka skjalabirtingu. Mbl.is greindi fyrst frá umræddum tölvupósti. Í frétt miðilsins er fullyrt að setningin hafi endað með spurningamerkjum og Chopra því verið að beina spurningu um Dorrit og Ólaf til Epsteins. Í afriti af tölvupóstinum má þvert á móti ekki sjá eiginleg spurningamerki heldur keimlíkt tákn sem tölvukerfi sýna þegar þau reyna að birta óþekkt eða óbirtanleg leturtákn. Því er ekki hægt að staðhæfa að Chopra hafi þarna verið að beina spurningu til Epsteins. Umrætt merki getur til dæmis birst þegar tölvuforriti mistekst að sýna broskarl eða lyndistákn en ekki er hægt að fullyrða hvað hafi upphaflega birst Epstein í tölvupóstinum. Þegar annað afrit af umræddum tölvupósti er sótt á vef bandaríska dómsmálaráðuneytisins er einnig greinilegt að setningunni um Dorrit og Ólaf er fylgt eftir með óþekktu tákni en ekki spurningamerki. Tölvupósturinn þar sem Chopra minnist á Dorrit og Ólaf er hluti af rannsóknargögnum í einhverri af rannsóknum bandarískra yfirvalda á málum Epsteins. Epstein-skjölin innihalda öll þau gögn sem dómsmálaráðuneytið hefur aflað í gegnum árin vegna rannsókna sem tengst hafa brotum Epsteins og annarra sem honum tengjast, eins og Ghislane Maxwell, fyrrverandi kærustu hans og aðstoðarkonu til langs tíma. Meðal annars er um að ræða tölvupósta Epsteins og önnur skilaboð, skrár sem fundust í tölvum hans á borð við myndir sem hann hafði sótt á netið og ýmislegt annað. Það að nafn einhvers komi fram í skjölunum þarf ekki að þýða að viðkomandi hafi verið grunaður um að hafa brotið af sér á einhvern hátt. Nánir vinir staddir á hótelinu Samskipti Epstein og Chopra hefjast á því að sá fyrrnefndi lætur rithöfundinn, sem aðhyllist nýaldarspeki og hefur meðal annars talað gegn hefðbundnum læknisfræðilegum aðferðum, vita af því að mjög nánir vinir Epsteins séu staddir með Chopra á hótelinu í Aspen. Þar vísar hann til Joi Ito, þáverandi stjórnanda MIT Media Lab og Ehud Barak, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels. Svona hefjast samskipti Epsteins við Chopra sem tjáir kaupsýslumanninum í kjölfarið að Ólafur og Dorrit séu einnig stödd á sama hóteli. „Ég hef sent þeim skilaboð um að þú sért einn af fjölskyldunni, þeir munu finna þig ef þú finnur þá ekki fyrst,“ skrifar Epstein. Síðar sama dag svarar Chopra póstinum. „Frábært Ég var með samkomu í gær Ég mun leiða hugleiðslu í St Regis / Highlands herberginu klukkan 7 áður en Charlie Rose flytur erindi sitt Ég mun fara seinna í dag til að halda áfram með túrinn minn Ást Ps Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér [óþekkt tákn]*“ Katherine Keating, Ólafur Ragnar Grímsson, Dorrit Moussaieff, Ghislaine Maxwell og Sharon Moussaieff sóttu boð kampavínsframleiðans Dom Perignon og Maxwell í september árið 2013 þar sem útgáfu Ideapod var fagnað. Getty/Patrick McMullan Minnst á Dorrit í tvö önnur skipti Þetta er ekki í eina skiptið sem nafnið Dorrit kemur fyrir í Epstein-skjölunum. Tölvupóstur frá Ghislaine Maxwell, samverkakonu Epsteins, til Leons nokkurs sem sendur var í september 2011 hefst með eftirfarandi hætti: „Leon hæ. Ghislaine hér. Sat m/Dorrit sem sagði mér að ég ætti að senda þér tölvupóst umsvifalaust! Hún segir að þú sért að leita að nýjum stjórnarmanni og sagði að hún hafi minnst á það við þig hvað fyrirtækið mitt gerir.“ Ekki er hægt að útiloka að hér sé vísað til annarar konu sem beri sama nafn og forsetafrúin fyrrverandi. Í póstinum heldur Maxwell áfram að lýsa ráðgjafafyrirtæki sínu og hvernig hún hafi áður hjálpað fyrirtæki að finna stjórnarmenn en ekki er aftur minnst á Dorrit. Tölvupóstur Maxwell til óþekkts Leons þar sem Dorrit er nefnd á nafn. Í tengiliðaskrá sem bandarísk yfirvöld hafa undir höndum í tengslum við rannsóknir á málefnum Epstein má einnig sjá Dorrit á lista ásamt símanúmeri en ekki er tilgreint hvort um sé að ræða Dorrit Moussaieff, athafnakonu og fyrrverandi forsetafrú. Símaskráin hefur verið birt áður og vísað til hennar sem „svörtu bókar“ Epsteins en þar má finna upplýsingar um fjölda heimsþekktra einstaklinga. Hluti af símaskránni umræddu. Dorrit nágranni Epsteins Dorrit sagðist í samtali við DV árið 2019 eiga marga sameiginlega vini með Epstein og hafa verið nágranni hans um tíma. „Jeffrey Epstein bjó í sömu götu og ég í London einhvertímann á milli 1978 og 1983. Við áttum marga sameiginlega kunningja. Það er möguleiki á því að á einhverjum tímapunkti hafi hann verið með símanúmerið mitt,“ sagði Doritt í svari við fyrirspurn DV um það hvort hún kunni að vera í símaskránni umræddu. Hún sagði jafnframt að hún hafi ekki orðið vitni að neinu óvenjulegu í hegðun Epstein. „Það var ekkert furðulegt við hann.“ Lítið þekkt Maxwell Árið 2019 svaraði Ólafur Ragnar fyrir samskipti sín við Maxwell en hún flutti erindi á Hringborði Norðurslóða (e. Arctic Circle) sem forsetinn fyrrverandi stofnaði. Hann sagðist ekki hafa þekkt vel til Maxwell þegar þegar hún var fengin til að ávarpa Hringborðið. Þau hafi þó hist í samkvæmi í New York sama ár þar sem af þeim náðist ljósmynd og birt var í erlendum fjölmiðlum. Hana má sjá hér að ofan en auk Ólafs Ragnars og Maxwell eru þær Katherine Keating, Dorrit Mousaieff og dóttir hennar Sharon á myndinni. „Hún talaði á Arctic Circle um hafið. Að öðru leyti hef ég engin tengsl við hana og hef ekki hitt hana nema á þessu samkvæmi í New York og þegar hún talaði á Arctic Circle. Epstein hef ég aldrei hitt,“ sagði Ólafur í samtali við Fréttablaðið árið 2019 þegar umrædd ljósmynd var til umfjöllunar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Mál Jeffrey Epstein Ólafur Ragnar Grímsson Bandaríkin Tengdar fréttir Samverkamaður Epstein flutti boðskap sinn í Hörpu Meðal ræðumanna á Hringborði Norðurslóða í Hörpu árið 2013 var Ghislaine Maxwell, sem var ákærð í gær vegna gruns um aðild að mansali. 3. júlí 2020 10:45 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Sjá meira
Samverkamaður Epstein flutti boðskap sinn í Hörpu Meðal ræðumanna á Hringborði Norðurslóða í Hörpu árið 2013 var Ghislaine Maxwell, sem var ákærð í gær vegna gruns um aðild að mansali. 3. júlí 2020 10:45