„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2026 07:30 Íslensku landsliðsþjálfararnir í undanúrslitum EM í ár eða þeir Snorri Steinn Guðjónsson, Dagur Sigurðsson og Alfreð Gíslason. Vísir/Vilhelm Dagur Sigurðsson þjálfari Króata vakti menn af værum blundi á blaðamannafundi fyrir undanúrslitaleikina á Evrópumótinu í handbolta en sérfræðingar Besta sætisins á Vísi segja að það hafi alls ekki verið rétti tíminn fyrir slíka umræðu.
Einar Jónsson og Rúnar Kárason mættu til Stefáns Árna Pálssonar og gerðu upp Evrópumótið í handbolta. Þeir veltu meðal annars fyrir sér framtíðinni en á næstu tveimur og hálfu ári fer fram heimsmeistaramót í Þýskalandi, Evrópumót á Spáni, í Portúgal og Sviss og Ólympíuleikar í Los Angeles. Næsta Evrópumót verður aðeins breytt þökk sé Degi Sigurðssyni.„Það er búið að breyta því móti. Dagur Sigurðsson gekk frá því þannig að það er búið að lengja það mót. Það er spurning hvort að, hvort að HM geri eitthvað í sínum málum varðandi sitt mót líka,“ sagði Stefán Árni en Einar tók þá boltann á lofti. Ofboðslega leiðinleg umræða „Þetta er ofboðslega leiðinleg umræða. Þessi umræða átti svo náttúrulega aldrei að eiga sér stað á þessu móti. Að vera að gagnrýna þetta á miðju móti, inni í miðju lokaslúttinu,“ sagði Einar. „Virðist hafa þurft til þess að eitthvað hreyfist,“ skaut Rúnar Kárason inn í. „Þá eru bara samböndin, talsmenn sambandanna og þeir sem eru að vinna í þessu á milli móta, þegar það eru ráðstefnur og hittingar, þá er það helvíti veikt batterí sem er að vinna í þessum málum fram að þessu. Svona umræða á bara ekki að koma upp inni í miðju móti. Þetta er bara galið,“ sagði Einar. „Þá verð ég bara að skrifa þetta líka á bara samböndin. Þetta lá fyrir fyrir löngu, löngu, löngu síðan. Þessi umræða á ekki að eiga sér stað. Það er ekki hægt að afsaka sig á bak við eitt eða neitt í þessu að mínu mati,“ sagði Einar. Gagnrýni hans er þó ekki á landsliðsþjálfarana sem létu heyra í sér. Ég skil Dag Sigurðsson, ég skil Snorra „Ég skil Dag Sigurðsson, ég skil Snorra Stein. Ég skil þeirra pirring. Þeir eru ekki að stúdera það fyrir sex mánuðum hvernig dagskráin er, hvenær þeir eigi að mæta á blaðamannafundi eða hvernig rútan verður. Það eru aðrir aðilar innan þessara sambanda sem þurfa að vera með þessa hluti algjörlega á hreinu. Ef menn eru ósáttir, þá verður að koma þeim mótmælum fram á réttum tímapunkti. Þetta var ekki rétti tímapunkturinn,“ sagði Einar. „Það sem að Dagur gerði vona ég að þá allavega kveiki einhver ljós í fílabeinsturninum sem er þarna einhvers staðar í Mið-Evrópu og menn fari, og tala nú ekki um að það hjálpi til einhvers staðar í Egyptalandi líka. Að þetta verði til þess að mót lengist aðeins og að það verði hugsað meira um hag leikmannanna og gæði leikjanna. Þá verður þetta stórkostlegt,“ sagði Einar. Allir leikmenn eru brjálaðir og þjálfarinn líka „Ég hef verið á stórmótum og þessi umræða er í gangi og allir leikmenn eru brjálaðir og þjálfarinn líka. Allir eru bara brjálaðir og ég hef líka bara heyrt kurrið síðustu tíu, tólf árin,“ sagði Rúnar. „Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni til þess að eitthvað hreyfðist og það er bara glatað. Ég er alveg sammála Einari í því að auðvitað eiga sérsamböndin að græja það en það virðist enginn hafa hlustað fyrr en okkar allra besti bara lét menn heyra það, bara með góðri hárþurrku í beinni,“ sagði Rúnar. Það má hlusta á meira um þetta og annað í kringum íslenska landsliðið í Besta sætinu þar sem menn voru að gera upp lokaleikinn á móti Króatíu sem og allt mótið. Allur þátturinn er aðgengilegur hér fyrir neðan sem og á öllum hlaðvarpssveitum.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Besta sætið Tengdar fréttir Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í króatíska handboltalandsliðinu eru þjóðhetjur og þeim verður fagnað í dag eftir bronsverðlaunin á EM, rétt eins og eftir silfrið á HM fyrir ári síðan. 2. febrúar 2026 16:02 75 prósent tapleikja á síðustu tveimur stórmótum á móti Degi Sig Dagur Sigurðsson vann verðlaun á öðru stórmótinu í röð þegar Króatar tryggðu sér bronsverðlaun á Evrópumótinu í handbolta með sigri á Íslendingum í gær. Dagur virðist vera orðinn algjört „kryptonite“ fyrir íslenska landsliðsþjálfarann Snorra Stein Guðjónsson. 2. febrúar 2026 11:01 Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Sérfræðingarnir í Besta sætinu veltu því fyrir sér hvað vantar í íslenska liðið til að liðið taki næsta skref og nái mögulega í verðlaun á stórmótum á næstu árum. Það er einkum eitt sem þeir kalla eftir í kjölfarið að liðið tapaði tveimur síðustu leikjum sínum á Evrópumótinu og endaði í fjórða sætinu. 2. febrúar 2026 10:01 „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Sérfræðingar Besta sætisins segja ekkert annað koma til greina en að bjóða Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara Íslands, nýjan samning fram yfir Ólympíuleikana 2028. 1. febrúar 2026 21:31 Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Framtíð íslenska karlalandsliðsins í handbolta var til umræðu í Besta sætinu eftir að íslenska liðið náði fjórða sætinu á Evrópumótinu í ár. Þar eru sérfræðingarnir sammála um að liðið sé á góðum aldri til að vinna enn frekari afrek á næstu árum. 2. febrúar 2026 08:02 Mest lesið Öryggisgæsla landsliðsins aukin og engir sénsar teknir Fótbolti Landsleikur Íslands í Mexíkó í hættu? Fótbolti Í hefndarhug til Íslands eftir „fíaskóið“ á EM Handbolti „Hann var farþegi í þessum leik“ Enski boltinn Ofbeldisfulli pabbinn fær að mæta á mót en synirnir verða ekki þar Sport „Sammála að þetta sé dýfa en þú þarft að gera þetta“ Enski boltinn Stjórinn sem sótti Viktor og seldi Orra rekinn úr starfi Fótbolti Sló met Íslands en hættir vegna veikinda dóttur sinnar Fótbolti Vonn svarar fyrir sig: „Sveið þegar fólk sagði að ég væri eigingjörn“ Sport Prestianni fær ekki að spila gegn Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Í hefndarhug til Íslands eftir „fíaskóið“ á EM KA hafði betur gegn ÍBV í spennutrylli á Akureyri Auðvelt hjá Magdeburg og Íslendingar áberandi Benedikt ekki brotinn en frá næstu vikurnar „Mín mistök að hafa ekki komið Bjögga betur inn í mótið“ Þorsteinn Leó með fjögur í fjórða sigri Porto í röð Púðurskot hjá Viggó og áfram gengur ekkert hjá Göppingen Þórsarar upp úr fallsæti Valskonur völtuðu yfir Stjörnuna Uppgjör: Fram - ÍR 26-34 | Öruggur og mikilvægur sigur ÍR Eyjakonur höfðu betur í Suðurlandsslagnum Slær niður veggi í HSÍ eftir viðburðaríkan fyrsta mánuð í starfi Snorri beið spenntur eftir ræðu Dags og er sammála honum Viktor Gísli með 48 prósent markvörslu í stórsigri Valsmenn með þriggja stiga forskot á toppnum eftir stórsigur Framarar safna áfram sigrunum eftir Evrópuflakkið Óli P. Ólsen er látinn Burðarás snýr aftur norður en bíður fyrst eftir barni Grínaðist í Antoni: „Við erum báðir rauðhærðir“ „Ekki endilega eitthvað sem ég þarf að upplifa aftur“ Uppgjör: Haukar - FH 25-32| Haukar létu valta yfir sig á heimavelli Mosfellingar enduðu taphrinuna og Haukakonur unnu fyrir norðan Sigurganga stráka Guðjóns Vals heldur áfram en tap hjá Bjarka Díana í lokaprófi og missir af mikilvægum landsleik Ómar Ingi markahæstur þegar Magdeburg tryggði sig inn í átta liða úrslit Elín Klara lék best allra á vellinum Viktor Gísli fagnaði sigri og sæti í átta liða úrslitunum Sara Dögg tekin inn í hópinn fyrir næstu leiki í undankeppni EM Reynir markahæstur í Íslendingaslagnum Fjórða tapið í röð hjá lærisveinum Arnórs Sjá meira
Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í króatíska handboltalandsliðinu eru þjóðhetjur og þeim verður fagnað í dag eftir bronsverðlaunin á EM, rétt eins og eftir silfrið á HM fyrir ári síðan. 2. febrúar 2026 16:02
75 prósent tapleikja á síðustu tveimur stórmótum á móti Degi Sig Dagur Sigurðsson vann verðlaun á öðru stórmótinu í röð þegar Króatar tryggðu sér bronsverðlaun á Evrópumótinu í handbolta með sigri á Íslendingum í gær. Dagur virðist vera orðinn algjört „kryptonite“ fyrir íslenska landsliðsþjálfarann Snorra Stein Guðjónsson. 2. febrúar 2026 11:01
Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Sérfræðingarnir í Besta sætinu veltu því fyrir sér hvað vantar í íslenska liðið til að liðið taki næsta skref og nái mögulega í verðlaun á stórmótum á næstu árum. Það er einkum eitt sem þeir kalla eftir í kjölfarið að liðið tapaði tveimur síðustu leikjum sínum á Evrópumótinu og endaði í fjórða sætinu. 2. febrúar 2026 10:01
„Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Sérfræðingar Besta sætisins segja ekkert annað koma til greina en að bjóða Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara Íslands, nýjan samning fram yfir Ólympíuleikana 2028. 1. febrúar 2026 21:31
Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Framtíð íslenska karlalandsliðsins í handbolta var til umræðu í Besta sætinu eftir að íslenska liðið náði fjórða sætinu á Evrópumótinu í ár. Þar eru sérfræðingarnir sammála um að liðið sé á góðum aldri til að vinna enn frekari afrek á næstu árum. 2. febrúar 2026 08:02