Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2026 07:33 Ómar Ingi Magnússon endaði sem fjórði markahæsti leikmaður Evrópumótsins og skoraði 18 mörk úr 21 skoti í síðustu tveimur leikjunum. Vísir/Vilhelm Einar Jónsson og Rúnar Kárason mættu til Stefáns Árna Pálssonar og gerðu upp Evrópumótið í Besta sætinu þar sem íslenska landliðið náði fjórða sæti og spilaði í fyrsta sinn um verðlaun í sextán ár. Sérfræðingarnir ræddu sérstaklega frammistöðu fyrirliðans Ómars Inga Magnússonar.
Ómar Ingi Magnússon endaði mótið með tólf mörk úr tólf skotum á móti Króatíu og átti á undan mjög góðan leik á móti Dönum. Það var allt annað að sjá hann í þessum tveimur síðustu leikjum heldur en lengst af í mótinu. „Ómar var bara fínn en ég hefði nú alveg viljað sjá hann taka tvö til þrjú skot í viðbót. Hann var með hundrað prósent nýtingu og á bara mjög flottan leik. Hann var bara sjóðandi heitur þannig að það hefði mátt setja upp meira fyrir hann. Hann tók eitt gott þarna fyrir utan en ég hefði viljað sjá kannski tvö þannig í viðbót. Ég sá nokkur tækifæri til að skjóta þarna en ég sé bara tækifæri til að skjóta fyrir utan,“ sagði Rúnar Kárason. „Hann var bara flottur, leiðtogi og ískaldur á vítalínunni. Það þarf bara alveg hrikaleg gæði til að taka svona mörg vítaskot og skora úr þeim öllum,“ sagði Rúnar en Ómar nýtti öll tíu vítin sín í leiknum og fiskaði þrjú þeirra sjálfur. Hefði sennilega verið enn betri í þeim leik „Maður sá hann svolítið í síðasta leik á móti Dönum, þá steig gaurinn upp. Hann þekkti sviðið og ef við hefðum verið að spila til úrslita áðan hefði hann sennilega verið enn betri í þeim leik,“ sagði Stefán. Ómar Ingi endaði sem fjórði markahæsti leikmaður Evrópumótsins og skoraði 18 mörk úr 21 skoti í síðustu tveimur leikjunum. „Geltandi líka á dómarana og mér finnst Ómar hafa vaxið sem manneskja og leiðtogi eða allavegana svona sjáanlega. Kannski hefur hann alltaf verið svona,“ sagði Rúnar. Hann fær að heyra það „Erum við ósanngjörn við Ómar sem þjóð? Hann fær að heyra það,“ sagði Stefán. „Ef Messi getur ekkert með Argentínu heldurðu þá að menn séu bara að klappa hann upp. Það verður allt brjálað. Það er bara þannig. Mér finnst bara að við eigum að geta gert kröfur á þessa stráka. Ég segi það fullum fetum að þetta var ekki gott mót hjá Ómari, því miður. Hann var frábær á móti Dönum en ég vil bara sjá hann gera betur,“ sagði Einar. „Ég veit ekki hverju er um að kenna. Það þarf bara að greina það,“ sagði Einar. Honum finnst samlífið hjá Gísla Þorgeiri Kristjánssyni og Ómari Inga ekki ganga alveg upp í landsliðinu þótt þeir spili saman með félagsliði. Jafnvægið á milli Ómars og Gísla ekki nógu gott „Mér finnst jafnvægið á milli Ómars og Gísla ekki nógu gott. Það hefur einhvern veginn farið af Ómari yfir á Gísla núna. Ómar hefur náttúrulega átt frábær mót þegar hann hefur verið heill síðustu ár en þá hefur Gísli ekki fundið sig. Nú var Gísli algjörlega „outstanding“ og þá finnst mér Ómar einhvern veginn ekki vera að finna sig í raun og veru. Hann var ágætur en ekki að því marki sem ég tel að hans geta sé,“ sagði Einar. „Mér finnst bara Ómar vera stórkostlegur leikmaður en mér finnst þetta bara mót undir [yfir] pari hjá honum,“ sagði Einar. Það má hlusta á meira um þetta og annað í kringum íslenska landsliðið í Besta sætinu þar sem menn voru að gera upp lokaleikinn á móti Króatíu sem og allt mótið. Allur þátturinn er aðgengilegur hér fyrir neðan sem og á öllum hlaðvarpssveitum.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Besta sætið Tengdar fréttir Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Gísli Þorgeir Kristjánsson varð tíundi íslenski leikmaðurinn til að vera valinn í úrvalslið stórmóts í handbolta karla þegar hann var valinn í úrvalslið Evrópumótsins í handbolta í gær. Ísland hefur átt leikmann í úrvalsliði fimmtán sinnum frá því farið var að velja slík lið. 2. febrúar 2026 09:01 Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Íslenska landsliðið náði fjórða sætinu á Evrópumótinu í handbolta þrátt fyrir að fá lítið sem ekkert af mörkum með langskotum. Tölfræði mótsins sýnir það svart á hvítu hversu langt á eftir íslenska liðið var á eftir bestu liðum mótsins. 2. febrúar 2026 13:02 Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Sérfræðingarnir í Besta sætinu veltu því fyrir sér hvað vantar í íslenska liðið til að liðið taki næsta skref og nái mögulega í verðlaun á stórmótum á næstu árum. Það er einkum eitt sem þeir kalla eftir í kjölfarið að liðið tapaði tveimur síðustu leikjum sínum á Evrópumótinu og endaði í fjórða sætinu. 2. febrúar 2026 10:01 Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Íslensku landsliðsmennirnir eru áberandi meðal efstu manna í tölfræði Evrópumótsins í handbolta sem lauk í gær og Ísland á menn í efsta sætinu á tveimur listum. 2. febrúar 2026 06:33 „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Sérfræðingar Besta sætisins segja ekkert annað koma til greina en að bjóða Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara Íslands, nýjan samning fram yfir Ólympíuleikana 2028. 1. febrúar 2026 21:31 „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ „Þetta er bara ótrúlega svekkjandi,“ sagði Bjarki Már Elísson eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta í bronsleik EM gegn Króötum í dag. 1. febrúar 2026 16:58 Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Fleiri fréttir Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Fram - Haukar | Geta haldið fullu húsi Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Sjá meira
Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Gísli Þorgeir Kristjánsson varð tíundi íslenski leikmaðurinn til að vera valinn í úrvalslið stórmóts í handbolta karla þegar hann var valinn í úrvalslið Evrópumótsins í handbolta í gær. Ísland hefur átt leikmann í úrvalsliði fimmtán sinnum frá því farið var að velja slík lið. 2. febrúar 2026 09:01
Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Íslenska landsliðið náði fjórða sætinu á Evrópumótinu í handbolta þrátt fyrir að fá lítið sem ekkert af mörkum með langskotum. Tölfræði mótsins sýnir það svart á hvítu hversu langt á eftir íslenska liðið var á eftir bestu liðum mótsins. 2. febrúar 2026 13:02
Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Sérfræðingarnir í Besta sætinu veltu því fyrir sér hvað vantar í íslenska liðið til að liðið taki næsta skref og nái mögulega í verðlaun á stórmótum á næstu árum. Það er einkum eitt sem þeir kalla eftir í kjölfarið að liðið tapaði tveimur síðustu leikjum sínum á Evrópumótinu og endaði í fjórða sætinu. 2. febrúar 2026 10:01
Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Íslensku landsliðsmennirnir eru áberandi meðal efstu manna í tölfræði Evrópumótsins í handbolta sem lauk í gær og Ísland á menn í efsta sætinu á tveimur listum. 2. febrúar 2026 06:33
„Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Sérfræðingar Besta sætisins segja ekkert annað koma til greina en að bjóða Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara Íslands, nýjan samning fram yfir Ólympíuleikana 2028. 1. febrúar 2026 21:31
„Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ „Þetta er bara ótrúlega svekkjandi,“ sagði Bjarki Már Elísson eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta í bronsleik EM gegn Króötum í dag. 1. febrúar 2026 16:58