Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Eiður Þór Árnason skrifar 4. febrúar 2026 21:09 Thea Rut Jónsdóttir, formaður Framsóknarfélags Akureyrar og nágrennis, segir málið ekki snúast um hvorn frambjóðandann félagið styður. Samsett/aðsend Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis kærði í dag viðburð sem kvennahreyfing Framsóknar hefur boðað með Lilju Alfreðsdóttur formannsframbjóðanda til siðanefndar flokksins. Fundurinn fer fram nokkrum dögum fyrir flokksþing þar sem næsti formaður verður valinn.
Akureyri.net greinir frá þessu en Thea Rut Jónsdóttir, formaður Framsóknarfélags Akureyrar og nágrennis, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður og þingmaður Framsóknar í Norðausturkjördæmi, sækist einnig eftir því að taka við sem næsti formaður á flokksþinginu sem hefst 14. febrúar en Sigurður Ingi Jóhannsson gefur ekki kost á sér áfram. Umræddur viðburður Kvenna í Framsókn með Lilju, varaformanni flokksins, á Vinnustofu Kjarvals í miðborg Reykjavíkur er boðaður 10. febrúar. Thea segir það skipta máli í þessu samhengi að Konur í Framsókn, skipuleggjandi viðburðarins, sé landssamband innan Framsóknar. „Því fannst okkur þetta örlítið alvarlegra en ella.“ „Þetta er stærri eining heldur en Framsóknarfélögin og þetta bara á ekki heima þarna.“ Hún segir stjórn Framsóknarfélagsins á Akureyri telja þetta brjóta í bága við siðareglur flokksins og þá helst grein um hlutlægni sem inniheldur eftirfarandi: „Óheimilt er að misnota stöðu í eigin þágu eða annarra. Kjörnir fulltrúar, eiga í hvívetna að gæta þess að fara vel með hlutverk sitt.“ Thea líkir þessu við það að félag eldri borgara innan flokksins væri með viðburð þar sem einungis Ingibjörg kæmi fram. Bjóða upp á freyðivín með Lilju Í færslu sem Konur í Framsókn deila á Facebook er viðburðurinn með Lilju auglýstur með eftirfarandi hætti: „Hlökkum til að sjá ykkur í Fantasíu á Vinnustofu Kjarvals þriðjudaginn 10. febrúar. Staðan í alþjóðamálum og hér á norðurslóðum rædd. Hver er staða Íslands og hvar er okkur best borgið í breyttri heimsmynd? Kalt og freyðandi á meðan birgðir endast og Happy Hour tilboð á barnum.“ Í athugasemdum á Facebook má sjá fleiri gagnrýna viðburð landssambandsins Konur í Framsókn. Þeirra á meðal er Gunnar Ásgrímsson, fyrrverandi formaður Sambands ungra Framsóknarmanna. „Ég verð nú að segja að mér finnst ofboðslega ósmekklegt að Konur í Framsókn ætli að halda viðburð með annan formannsframbjóðanda í fyrirrúmi nokkrum dögum fyrir flokksþing. Nú væri best ef að KíF sæi sóma sinn í því að bíða með viðburðinn, sem mætti telja sem stuðning við annan frambjóðanda umfram hinn, þar til eftir flokksþing. Það að halda hann fyrir flokksþing gerir ekkert nema skapa sundrung innan flokksins,“ skrifar Gunnar sem er úr Norðvesturkjördæmi. Lilja er varaformaður Framsóknar og sækist eftir því að taka við af Sigurði Inga Jóhannssyni sem ætlar ekki að gefa kost á sér áfram.Vísir/Egill Thea tekur í sama streng og Gunnar. „Þau eru ekki að spila leikinn eins og á að spila leikinn,“ segir hún. „Ef þessi viðburður hefði verið helgina eftir flokksþing eða í mars eða bara hvenær sem er, þá hefði enginn sagt neitt við þessu.“ Gæta verði jafnræðis milli frambjóðenda til formanns. Þá sé mikilvægt að flokkurinn standi saman og að allir geti unnið saman eftir kosningar. „Það er svona pínu verið að troða fólki í einhverjar fylkingar sem er ekki sniðugt. Og hvort sem ég styð Ingibjörgu eða ekki, þá er þetta bara prinsipp. Við brjótum ekki siðareglur.“ Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar og nágrennis vonast til að fá fljótlega viðbrögð við kærunni frá siðanefnd flokksins enda skammur tími til stefnu. Fréttin hefur verið uppfærð, meðal annars til að leiðrétta að Gunnar Ásgrímsson er ekki lengur formaður SUF:
Framsóknarflokkurinn Akureyri Flokksþing Framsóknar 2026 Tengdar fréttir Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi menningar- og viðskiptaráðherra, ætlar að gefa kost á sér í formannssæti flokksins. Þetta tilkynnti hún á félagsfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur sem fram fór á Hilton Reykjavík Nordica í kvöld. 22. janúar 2026 21:15 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira
Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi menningar- og viðskiptaráðherra, ætlar að gefa kost á sér í formannssæti flokksins. Þetta tilkynnti hún á félagsfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur sem fram fór á Hilton Reykjavík Nordica í kvöld. 22. janúar 2026 21:15