Áfram léttskýjað á Suðvesturhorninu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. febrúar 2026 07:54 Á höfuðborgarsvæðinu veðrur áfram léttskýjað og nokkurra stiga frost. Vísir/Vilhelm Áfram er að mestu léttskýjað sunnan- og suðvestanlands en víða annars staðar á landinu er spáð éljakomu. Eftir hádegi tekur að hvessa á Vestfjörðum.
Veðurstofa Íslands spáir norðaustan þrír til tíu metrar á sekúndu og víða éljakomu, en átta til fimmtán metra á sekúndu norðvestantil á landinu eftir hádegi. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að búast megi við stinningsgolu eða kalda en strekkingi eða allhvössum vindi eftir hádegi á Vestfjarðakjálkanum. Á Norðaustur- og Austurlandi verður éljagangur samfelldari ofankoma norðvestantil. Það bætir í vind í nótt og spá veðurfræðingar allhvössum vindi eða strekkingi á morgun. Rigning eða slydda Norðan- og Austanlands. Áfram verður bjart og þurrt á Suður- og Vesturlandi. Hálka eða hálkublettir eru víða á Suðurlandi, Suðvesturlandi og Vesturlandi. Sömu sögu má segja á Vestfjörðum en það snjóar á stöku stað og snjóþekja er á nokkrum leiðum. Á Norðurlandi er snjóþekja á Öxnadalsheiði, annars hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Samkvæmt vefsíðu Vegagerðarinnar, umferðin.is, er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum á Austurlandi. Krapi er í Norðfirði en ófært um Öxi og Breiðdalsheiði. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag:Norðaustan 10-18 m/s, hvassast norðvestantil og við suðausturströndina. Rigning, slydda eða snjókoma með köflum um landið norðan- og austanvert, annars þurrt að mestu. Hiti um eða yfir frostmarki.Á þriðjudag:Norðaustan 8-15, en hvassviðri við suðausturströndina. Él norðan- og austantil, en léttskýjað um landið suðvestanvert. Kólnar smám saman.Á miðvikudag:Norðaustan og norðan 5-13 og dálítil él, en bjart að mestu á Suður- og Vesturlandi. Frost 1 til 8 stig.Á fimmtudag og föstudag:Breytileg átt og dálítil él norðantil, en annars að mestu bjart. Kalt í veðri.Á laugardag:Útlit fyrir austlæga átt með snjókomu eða slyddu, en lengst af þurrt norðanlands.
Veður Samgöngur Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Innlent Fleiri fréttir Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Þungbúið fyrir norðaustan en heiðskírt víða annars staðar Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Gular viðvaranir vegna storms í kvöld og á morgun Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Lægð með snjókomu fer hratt yfir landið Snýst í austan og suðaustan í kvöld með snjókomu og slyddu Slydduél og snjókoma í kortunum Gular veðurviðvaranir í kortunum Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu á morgun Sjá meira