Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 9. febrúar 2026 07:52 Íslensk stjórnvöld hafa gert samning við ráðgjafafyrirtæki um að sinna hagsmunagæslu fyrir Ísland í Washington DC. Getty Íslensk stjórnvöld hafa ráðið bandaríska fyrirtækið Brownstein Hyatt Farber Schreck til að sinna hagsmunagæslu fyrir Ísland í Washington. Samningur Íslands við fyrirtækið er til sex mánaða og fær Brownstein greidda 25 þúsund Bandaríkjadali á mánuði, eða sem nemur rúmum þremur milljónum íslenskra króna. Íslenska ríkið gerði samning við fyrirtækið í lok janúar, innan við mánuði eftir að sendiherraefni Bandaríkjanna gagnvart Íslandi grínaðist með að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna.
Þetta kemur fram í umfjöllun Politico þar sem vísað er í tilkynningu til bandaríska dómsmálaráðuneytisins um samninginn. Lögfræði- og ráðgjafafyrirtækið Brownstein Hyatt Farber Schreck er reynslumikið fyrirtæki á sviði ráðgjafa- og hagsmunagæslu, meðal annars fyrir erlend ríki. „Vinna þeirra mun fela í sér að aðstoða Ísland við leiðsögn um alríkisstjórnkerfið með því að koma á kynnum og fundum með lykilhagsmunaaðilum, að þróa stefnumótun og aðferðir fyrir samskipti þess við Washington,“ segir meðal annars í tilkynningunni sem Politico vísar í. Þá mun Brownstein einnig gegna hlutverki ráðgjafa og veita „uppbyggilega endurgjöf um ný forgangsmál fyrir ríkisstjórn Íslands.“ Það eru meðal annars Samantha Carl-Yoder, fyrrverandi diplómati, og Brandt Anderson, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi öldungardeildarþingmannsins Todd Young, sem munu starfa fyrir Ísland hjá Brownstein ásamt þeim Brady Howell, Tom Wotka og Jason Buckner. Howell starfaði meðal annars fyrir Donald Trump á hans fyrsta kjörtímabili í Hvíta húsinu. Líkt og áður segir er ráðning Brownstein til að gegna hagsmunagæslu fyrir Ísland sett í samhengi við nýleg ummæli Billy Long, sendiherraefni Bandaríkjanna gagnvart Íslandi. Ummælin sem Long lét falla féllu í grýttan jarðveg hjá íslenskum stjórnvöldum, en hann baðst síðar afsökunar á því að hafa grínast með að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna.
Utanríkismál Bandaríkin Sendiráð Íslands Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Öryggis- og varnarmál Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Sjá meira