Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Smári Jökull Jónsson skrifar 12. febrúar 2026 18:47 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er hér í hópi ráðherra NATO-ríkja á fundinum í Brussel í morgun en fremst til vinstri má sjá Mark Rutte framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Vísir/Getty Utanríkisráðherra sótti í dag fund varnarmálaráðherra NATO-ríkjanna sem haldinn var í Brussel. Ráðherra Bandaríkjanna mætti ekki á fundinn en Þorgerður Katrín segir að engu að síður hafi jákvæð skref verið tekin í vinnuhópi Danmerkur, Grænlands og Bandaríjkanna um málefni Grænlands.
Eftir fundinn greindi ráðherra meðal annars frá fjárfestingu Íslands vegna vopnakaupa af Bandaríkjunum til handa Úkraínu en íslensk stjórnvöld munu verja um einum milljarði króna í verkefnið PURL (Prioritised Ukraine Requirements List). Um er að ræða kaup á varnartengdum búnaði og þá verður 300 milljónum varið til samhæfingarherstjórnar bandalangsin fyrir Úkraínu en þetta kom fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu í dag. „Evrópa er að rísa upp bæði með því að fjárfesta sjálf í eigin vörnum en líka er að koma í ljós að Evrópa er helsti fjármagns- og stuðningsaðili Úkraínu og sér bara um langmesta hlutann af því að hjálpa Úkraínu, fjármagna það sem þau þurfa til þess að standa í þessu varnarstríði sem þau standa í gagnvart Rússum,“ sagði Þorgerður Katrín í samtali við fréttastofu síðdegis í dag. Norræna hringnum er lokað Ráðherra segir stuðninginn eindreginn en sömuleiðis skipti aukin áhersla Atlantshafsbandalagsins á Norðurslóðir Ísland miklu máli. Tvímælalaust sé verið að efla varnir og öryggi á svæðinu. „Við Íslendingar höfum náttúrulega verið að leggja áherslu á þetta og ég undanfarið, bæði á fundum varnarmálaráðherra og utanríkisráðherra. Að við þurfum líka að vera meðvituð um að það þarf að auka öryggi og varnir á norðurslóðum.“ Þessa dagana er flugsveit frá sænska flughernum stödd hér á landi og sinnir loftrýmisgæslu í íslenskri lofthelgi. „Það er mjög ánægjulegt að Svíar séu að sinna loftrýmisgæslu og þá er í rauninni norræna hringnum lokað. Finnar eru líka búnir að sinna loftrýmisgæslunni og núna eru Svíar að gera það. Auðvitað undirstrikar þetta sterkt samstarf okkar við Atlantshafsbandalagið og ekki síst okkar norrænu lönd. Það eru vinaþjóðir og það samstarf hefur aldrei verið betra eða dýrmætara.“ Jákvæð skref tekin varðandi Grænland Peter Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna mætti ekki á fundinn í Brussel en sendi þess í stað undirmann sinn Eldbridge Colby. „Ég ætla nú ekki að lesa mikið í þetta en bara leiðinlegt fyrir hann að hann er að missa af góðum félagsskap. Hitt er síðan að að ef við skoðum bara þróunina, þar sem það var mjög mikil áskorun fyrir bandalagið í byrjun þessa árs með ýmsum yfirlýsingum sem við Íslendingar mótmæltum harðlega varðandi Grænland, er að það eru jákvæð skref í þessum vinnuhópi milli Danmerkur, Grænlands og Bandaríkjanna. “ Straaumarnir séu jákvæðir á fundnum og eining og samstaða meiri en hún segir að kannski hafi verið gert ráð fyrir fundinn í Brussel. „Jákvæðu skrefin felast meðal annars í því að það er verið að að einblína á öryggi og varnir á Norðurslóðum undir ramma og undir regnhlíf NATO. Það skiptir mjög miklu máli. Síðan hitt að að það hafa verið að mínu mati skynsamleg skilaboð frá Bandaríkjunum inn á þessum fundi sem að fela í sér ákall um að gera meira.“ Ekki að ástæðulausu að Ísland sé að fjölga stoðum í öryggis- og varnarmálum Evrópa er að gera meira og hafi tekið stöðuna alvarlega. NATO sé að styrkjast um leið og Evrópa og það styrki sambandið þvert yfir Atlantshafið. „Allt hjálpar þetta til þess að stuðla að meiri einingu og samstöðu og því, sem að hefur verið meðal annars kallað eftir af hálfu Bandaríkjanna en líka annarra, að það er að auka öryggi og varnir í Norður-Atlantshafinu og á Norðurslóðum. Íslendingar njóta góðs af því.“ Hversu háð Bandaríkjunum er Evrópa og þá Íslendingar í varnarmálum? „Við náttúrulega eigum mjög gott samstarf við Bandaríkin eins og Evrópa og aðildin að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningurinn við Bandaríkin eru tvær grunnstoðir okkar í öryggis- og varnarmálum.“ „En við skulum heldur ekki draga dul á það að það er ástæða fyrir því að við erum að fjölga stoðum undir okkar öryggi og varnir og við erum að efla tvíhliða og marghliða samband og samstarf á sviði öryggis og varna. Alveg eins og allar aðrar þjóðir í Evrópu eru að gera. Það er allavega ljóst eftir þennan fund að Evrópa er að koma sterkari út úr þessum fundi og samstaðan er meiri, bæði meðal Evrópuríkja en líka meðal allra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins.“
Utanríkismál Öryggis- og varnarmál NATO Grænland Bandaríkin Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Sjá meira