Köldu heimskautalofti enn beint til landsins Atli Ísleifsson skrifar 13. febrúar 2026 07:11 Frost á landinu verður á bilinu þrjú til fimm stig. Vísir/Vilhelm Hæð yfir Grænlandi og lægðasvæði við Noreg beina enn köldu heimskautalofti til landsins. Áttin er því norðlæg eða breytileg en vindur verður þó ekki tiltakanlega mikill í dag, þar sem víða má reikna með golu eða kalda.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði éljagangur um landið norðanvert og einnig við suðausturströndina fram eftir degi, en léttskýjað suðvestantil. Frost verður á bilinu þrjú til fimm stig, kaldast inn til landsins. „Austlæg átt á morgun, yfirleitt 5-13 m/s, en hægviðri um landið norðaustanvert. Austanáttinni fylgja dálítil él suðaustan- og austantil, en í öðrum landshlutum verður líklega þurrt að mestu. Áfram kalt, en dregur úr frosti sunnanlands. Annað kvöld bætir í vind allra syðst á landinu og þar má búast við allhvössum eða hvössum vindi fram yfir hádegi á sunnudag. Í öðrum landshlutum er hins vegar útlit fyrir tíðindalítið en kalt veður á sunnudaginn, áfram dálítil él fyrir austan, en bjart að mestu á Suðvestur- og Vesturlandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Austlæg átt 5-13 m/s, en hægviðri norðaustanlands. Dálítil él, en lengst af þurrt um landið vestanvert. Frost 0 til 12 stig, kaldast norðaustantil. Hvessir við suðurströndina um kvöldið. Á sunnudag: Norðaustan og austan 8-18, hvassast syðst, en hægari norðaustantil. Dálítil él austanlands og við norðurströndina, annars bjart að mestu. Frost 2 til 15 stig, kaldast inn til landsins. Dregur úr vindi seinnipartinn. Á mánudag: Norðlæg eða breytileg átt 3-10 og dálítil él, en bjart með köflum um landið sunnanvert. Áfram kalt. Á þriðjudag og miðvikudag: Austan- og norðaustanátt og lítilsháttar él, en snjókoma með köflum og dregur úr frosti sunnantil. Á fimmtudag: Breytileg átt og bjart með köflum, en él norðan- og vestantil.
Veður Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira