Er Thomas Frank sá versti? Sindri Sverrisson skrifar 13. febrúar 2026 15:47 Thomas Frank virðist ekki hafa náð til leikmanna Tottenham. Getty/Catherine Ivill Sérfræðingar Messunnar ræddu um danska þjálfarann Thomas Frank sem nú hefur verið rekinn frá Tottenham, eftir innan við átta mánuði í starfi.
Þeir Aron Jóhannsson og Albert Brynjar Ingason færðu rök fyrir því að Frank væri versti stjóri sem Tottenham hefði haft, að minnsta kosti í langan tíma, og það er spurning hvernig liðinu mun nú vegna undir stjórn Króatans Igors Tudor sem mun vera að taka við liðinu út tímabilið. Klippa: Leikmenn aldrei á bakvið Frank Tudor tekur við Tottenham í aðeins fimm stiga fjarlægð frá fallsæti. „Þeir eru að „outperforma“ XG-ið sitt og eru samt í þessari stöðu. Þannig að þeir eiga ekkert inni. Þeir geta sem sagt ekki einu sinni rýnt í gögnin og sagt að þeir eigi að vera á betri stað. „Við erum að spila illa en við eigum að vera ennþá neðar!““ Ríkharð Óskar Guðnason, sem stýrði þættinum, benti þá á að margir hefðu stýrt Tottenham í gegnum árin og spurði hvort að Frank væri sá versti: „Já, klárlega ef þú horfir út tölfræðina og allt það. En hann er líka að díla við að ellefu byrjunarliðsmenn séu meiddir. Það spilar alveg inn í,“ sagði Aron og rifjaði svo upp viðtal við Frank frá því að hann var að taka við Tottenham, þar sem Daninn talaði um að vilja síður sjá skot utan teigs. „Hann hljómar ekkert sem rosalega skemmtilegur þjálfari. Og maður hefur séð það eiginlega frá byrjun tímabilsins að leikmenn standa ekki við bakið á honum.“ Í því sambandi má rifja upp þegar Djed Spence og Micky van de Ven hreinlega hundsuðu Frank eftir tap gegn Chelsea fyrr á leiktíðinni: „Þetta var eftir skelfilega frammistöðu gegn Chelsea. Þeir töpuðu bara 0-1 en hefðu átt að tapa svona 0-4. Og þegar Djed Spence af öllum, sem hefur ekki verið í neinu hlutverki þarna og á enga inneign fyrir svona stælum, er farinn að ignora þjálfarann þá er það auðvitað mikið áhyggjuefni,“ sagði Albert.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Tengdar fréttir Tudor tekur við Tottenham Tottenham Hotspur hefur fundið stjóra til að taka við af Thomas Frank sem var rekinn í þessari viku. 13. febrúar 2026 14:07 „Hann er skíthræddur“ Albert Brynjar Ingason gagnrýndi sína menn í Arsenal harðlega í Messunni á Sýn Sport, eftir 1-1 jafntefli toppliðsins við Brentford. 13. febrúar 2026 13:30 Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Körfubolti Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Körfubolti Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Enski boltinn Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Fótbolti Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Fótbolti Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Fleiri fréttir Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Sjá meira
Tudor tekur við Tottenham Tottenham Hotspur hefur fundið stjóra til að taka við af Thomas Frank sem var rekinn í þessari viku. 13. febrúar 2026 14:07
„Hann er skíthræddur“ Albert Brynjar Ingason gagnrýndi sína menn í Arsenal harðlega í Messunni á Sýn Sport, eftir 1-1 jafntefli toppliðsins við Brentford. 13. febrúar 2026 13:30