Salah og trúfélagar fá drykkjarhlé í miðjum leikjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. febrúar 2026 14:31 Mohamed Salah skoraði langþráð mark fyrir Liverpool í bikarsigrinum á Brighton and Hove Albion á Anfield um helgina. Getty/Steven Halliwell Enska úrvalsdeildin í fótbolta hefur tilkynnt að haldið verði áfram með stutt drykkjarhlé í miðjum leikjum í ramadan-mánuðinum, sem er hinn helgi mánuður þeirra sem eru íslamstrúar.
Í aðdraganda ramadan, hins helga mánaðar íslams, tilkynnti enska úrvalsdeildin að haldið yrði áfram með stutt drykkjarhlé sem hafa verið tekin síðan 2021 við þessar aðstæður. Fyrsta skiptið var í leik Leicester City gegn Crystal Palace þar sem ákveðið var að taka stutt drykkkarhlé fyrir leikmenn. Ramadan í ár hefst í dag, 17. febrúar, og stendur fram til 19. mars. Það fara því margir leikir fram í ensku úrvalsdeildinni á þessum tíma. Þessi ráðstöfun er gerð í markspyrnu, innkasti eða aukaspyrnu svo leikmenn geti neytt orkugjafa og vökvað sig til að geta haldið áfram að spila án vandræða. Tími fyrir þetta hlé er ákveðinn fyrir leikinn á fundi dómara og fyrirliða liðanna. Sumir af þeim múslímsku leikmönnum sem munu þurfa á þessum stuttu hléum að halda í miðjum leikjum eru knattspyrnumenn á borð við Mohammed Salah, Amad Diallo, William Saliba og Rayan Ait-Nouri, meðal annarra. Þessi ráðstöfun kemur ekki aðeins frá ensku úrvalsdeildinni heldur fylgja henni sérstakar ráðstafanir frá félögunum, eins og í tilfelli Liverpool á meðan Mané lék þar. Þá var rætt um ákvörðun félagsins um að færa æfingar til að leyfa betri frammistöðu leikmanna sinna og styðja þá í ramadan-mánuðinum. Þessi ráðstöfun ensku deildarinnar mun standa yfir í ramadan-mánuðinum og á hverju ári breytist dagsetningin vegna sveiflna í tímasetningu trúarhátíðarinnar. 🚨 The Premier League and English Football League will resume their procedures for Ramadan, with matches pausing briefly to allow Muslim players to break their fast. Play will not stop while matches are in mid-flow but at the earliest convenient moment during a goal-kick,… pic.twitter.com/3bbgkAr4sP— That's Football! (@ThatsFootballTV) February 16, 2026
Enski boltinn Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira