Hollenski skákmeistarinn og Íslandsvinurinn Jan Timman er látinn Jakob Bjarnar skrifar 19. febrúar 2026 16:46 Íslandsvinurinn Jan Timman er allur. Sepia Times/Universal Images Group via Getty Images Stórmeistarinn Jan Timman er látinn 75 ára að aldri. Hann var sannkölluð goðsögn í heimi skákarinnar. Hann er sá skákmaður sem náði einna lengst allra Hollendinga við svörtu og hvítu reitina og var sá eini sinnar kynslóðar sem gat veitt sovétska skólanum, sem á löngu tímabili var talinn óvinnandi vígi, einhverja keppni.
Timman fæddist í Amsterdam 1951 og náði að vinna sér inn stórmeistaratitil 1974. Hann var þekktur fyrir frumlega hugsun við skákborðið, baráttuvilja og djúpan skilning á innri flækjum og óvæntum möguleikum skáklistarinnar. Timman tefldi á efstu stigum, meðal annars í áskorendakeppnum, og var almennt talinn með þeim sterkari sem ekki töldust til Sovétska skólans. Timman lét sér ekki duga að tefla heldur gaf hann út bækur um skák og eru þær taldar með því betra sem ritað hefur verið um íþróttina. Þá skrifaði hann um skák sem blaðamaður og var hann um hríð ritstjóri „New in Chess“ tímaritinu. Glæsilegur fulltrúi ´68-kynslóðarinnar Tenging hans við Ísland var talsverð en þegar hann varð sjötugur ritað Helgi Ólafsson stórmeistari um hann á skák.is og sagði hann eiga marga góða vini á Íslandi en hann kom oft til landsins. Helgi segir hann góðan fulltrúa hinar frjálslyndu þjóðar sinnar sem og ´68-kynslóðarinnar. „Timman á marga vini hér á landi, ferðaðist um landið allt og tók ástfóstri við Íslendingasögurnar og þá einkum Njálu. Hollendingar voru stoltir af Max Euwe sem var heimsmeistari 1935-´37 og átti stóran þátt í vinsældum skákarinnar þar í landi. Timman tók við keflinu og fór fram úr Euwe í vissum skilningi. Framlag beggja á ritvellinum er merkilegt en síðasta bók Timmans, The Unstoppable American , fjallar um feril Bobby Fischers frá því að hann mætir í keppnina Heimurinn-Sovétríkin í Belgrad 1970 og verður heimsmeistari rösklega tveimur árum síðar.“ Hver og einn verður að finna sinn takt Að sögn Helga var helsti áhrifavaldur Timmans Botvinnik, sem var heimsmeistari með hléum frá 1948 til 1963. Sá staðfasti maður starfaði alla tíð eftir þaulskipulagðri dagskrá og í einni bóka sinna útskýrði Timman hvernig hann undirbjó sig fyrir skákkeppni. „Þar var áhersla lögð á hálfgerðan meinlætalifnað, líkamsrækt og kerfisbundnar rannsóknir á skáklistinni sem yrði að hætta nákvæmlega fimm dögum fyrir hverja keppni en þá tækju við langar gönguferðir í fersku fjallalofti,“ skrifar Helgi. Og segir af því að í bók Timmans The Art of Chess Analysis hafi hann sagt frá því að fyrir sterkt mót í Hollandi hefði hann ákveðið að fylgja leiðsögn Botvinniks í einu og öllu og var bókstaflega að springa af orku þegar mótið hófst. „En hvað gerðist? Hann tapaði fyrstu fimm skákunum! Dró þá ályktun að það hlyti að vera úrlaunsnarefni hvers og eins að finna sinn persónulega takt.“
Skák Andlát Holland Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira