Segir áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 28. febrúar 2026 13:09 Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur ræddi árásir Bandaríkjanna og Ísrael á Íran í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. AP/Aðsend Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur, setur spurningamerki við réttlætingu Bandaríkjanna og Ísrael fyrir árásum á Íran. Það séu vonbrigði að farið sé á svig við alþjóðalög og erfitt sé að ráða í umfang og árangur aðgerðanna á þessum tímapunkti, svo stuttu eftir að þær hófust. Íranski herinn hefur sagst ætla að kenna Bandaríkjunum og Ísrael „sögulega lexíu“ en Erlingur segir eftir að koma betur í ljós hver viðbrögð Írana verða með gagnárásum. „
Það sem að slær mig kannski fyrst og fremst er bara hversu hraklega málflutningurinn var settur saman að réttlæta þessar aðgerðir, þar sem er auðvitað farið á svig við stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalög almennt, þannig það heldur áfram að valda vonbrigðum frá Washington, alveg eins og í Venesúela,“ segir Erlingur. Þrátt fyrir að fáir fæstir myndu sakna íranskra stjórnvalda, þá setur Erlingur spurningarmerki við það hvernig Ísraelar og Bandaríkjamenn hafa staðið að aðgerðum. „Írönsk stjórnvöld mun enginn syrgja ef að þau falla frá og þessi fjöldamorð á mótmælendum undanfarnar vikur eru auðvitað skelfileg. En það er samt áhyggjuefni ef að leikreglur alþjóðakerfisins eru virtar að vettugi og það er hægt að grípa til hernaðaraðgerða af litlu tilefni. Þannig ég hef töluverðar áhyggjur af því,“ segir Erlingur. Einkum í ljósi þess að samningaviðræður um kjarnorkuáætlun hafi verið í gangi. „Maður spyr sig svolítið, voru þær komnar í strand þannig að það var ástæða til þess að grípa til valdbeitingar eða hvað býr hérna á bakvið?“ Erfitt sé að spá í spilin um það hversu lengi þetta ástand muni vara og hver áhrifin verða. „Við sáum í Venesúela að þar náðist árangur að vissu leyti mjög hratt þó að eftirleikurinn sé kannski dálítið flóknari. Ég gef mér að í Íran verði erfiðara að fella stjórnina með loftárásum einum saman og Trump kallar þarna eftir því að almenningur rísi upp og horfist þá í augu við vald ríkisstjórnarinnar á nýjan leik. Þannig það er mjög erfitt að ráða í það. En ég gef mér að stjórnvöld séu töluvert seigari í Íran heldur en þau voru í Venesúela þannig það verði aðeins meiri viðnámsþróttur, en það er mjög erfitt að spá um,“ segir Erlingur.
Íran Bandaríkin Ísrael Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira