Gæti orðið flughált síðdegis Atli Ísleifsson skrifar 3. mars 2026 07:25 Hálka er nokkuð víða á suðvestanverðu landinu. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Spáð er að hlýni skarpt síðdegis með rigningu á sunnan- og vestanverðu landinu. Það gæti því víða orðið flughált á meðan saman þjappaður snjór og klaki tekur upp.
Frá þessu segir á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is. Þar segir að blint verði á Hellisheiði og í Þrengslum í suðaustanhríð, sérstaklega á milli klukkan 11 og 14 en fer svo að rigna þar einnig. Hálka er nokkuð víða á suðvestanverðu landinu, svo sem í Þrengslum, í Hvalfirði, á Krýsuvíkurvegi, Vatnsleysustrandarvegi og víðar. Snjóþekja er í Kjós og hálkublettir eru nokkuð víða á öðrum leiðum. Á Norðausturlandi eru vegir lokaðir um Mývatns- og Möðrudalsöræfi, Vopnafjarðarheiði og Hófaskarð. Ófært er á Hólasandi, Kelduhverfi, Hólaheiði og á milli Þórshafnar og Vopnafjarðar. Snjóþekja eða hálka er á flestum öðrum leiðum. Á Austurlandi eru vegirnir um Fjarðarheiði og frá Djúpavogi að Höfn lokaðir. Þæfingur er á Fagradal ásamt skafrenningi og einbreiðum köflum en þæfingur er í Norðfirði. Ófært er víða, meðal annars um Vatnsskarð eystra, Öxi og Breiðdalsheiði. Vegir eru margir lokaðir á austan- og norðaustanverðu landinu. Vegagerðin Á Suðurlandi eru hálkublettir á milli Víkur og Klausturs. Annars verður hálka eða hálkublettir á flestum leiðum en snjóþekja á stöku stað. Á Vesturlandi er víða hálka en eitthvað er um hálkubletti og snjóþekju. Á Vestfjörðum er hálka á flestum leiðum. Á Norðurlandi er snjóþekja á Öxnadalsheiði og Ólafsfjarðarvegi en hálka á mörgum leiðum. Víkurskarði hefur verið lokað vegna snjóa.
Færð á vegum Veður Tengdar fréttir Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða. 3. mars 2026 06:34 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira
Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða. 3. mars 2026 06:34