Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Sunna Sæmundsdóttir og Agnar Már Másson skrifa 4. mars 2026 20:41 Hafdís Anna Hauksdóttir, Sigrún Heba Þorkelsdóttir, Sara Björk Þórðardóttir og Magnea Steinunn H. Magnadóttir voru nánast nýlaðar í heimsreisu þegar sprengjur fóru að falla víða um Persaflóaríkin. SÝN Ungar íslenskar konur sem fastar eru í Dúbaí sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi sem íslenska borgaraþjónustan hefur boðið borgurum á átakasvæðinu í Mið-Austurlöndum þar sem brottfararstaður er í 12 til 24 klukkustunda akstursfjarlægð. Þær vonast frekar til þess að geta náð flugi á laugardag og haldið sínu striki í heimsreisu.
Lofthelginni yfir Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem og öðrum Persaflóaríkjum, var lokað þegar Bandaríkin hófu árásir sínar á Íran að laugardagsmorgni. Átök hafa staðið yfir í Mið-Austurlöndum síðan þá en fjöldi Íslendinga á svæðinu hefur látið vita af sér og allir þeir átján sem óskuðu eftir að komast í björgunarflug frá Mið-Austurlöndum, ýmist til Slóvakíu eða Austurríkis, hafa fengið vilyrði fyrir sæti, samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu. Flogið verður frá Amman í Jórdaníu til Bratislava á morgun og á föstudag. Auk þess verður flogið frá Riyaj í Sádi Arabíu á morgun. En fyrir íslenska kvennahópinn er hægara sagt en gert að ná björgunarfluginu. En hópur ungra kvenna í Dúbaí segist með engu móti geta komið sér í björgunarflugin sem Íslendingum stendur til boða; það tæki þær hið minnsta sólarhring að aka frá Dúbaí til Amman í Jórdaníu, og um hálfan sólarhring að aka til Riyadh. Þær afþökkuðu því björgunarflugið. „Það var smá svekk að það hafi einhvern veginn verið besti kosturinn sem þau gátu gefið okkur, að keyra þessa slæmu leið,“ segir einn ferðalangurinn, Sigrún Heba Þorkelsdóttir, í kvöldfréttum Sýnar. „Það er eins og Norðurlöndin sjái ekki þörf á að bjarga fólkinu sínu héðan. Við finnum ekki fyrir neinu öryggi um að Ísland komi okkur heim,“ bætir hún við. Litlar upplýsingar sé að fá. Þær hafi ætlað í flug í fyrramálið en því hafi verið aflýst. Nú vinna þær að því að leita annarra leiða til að komast heim í samvinnu við foreldra sína og ferðaskrifstofuna Kilroy, sem sér um skipulag heimsreisunnar þeirra. Eins og staðan er nú vilja þær halda sínu striki í heimsreisunni og geta vonandi náð flugi frá Dubai á næsta áfangastað, Srí Lanka, á laugardag, ef því verður ekki líka aflýst eins og fluginu sem átti að taka á loft á morgun. Hafdís Anna Hauksdóttir segir að þær taki eftir aukinni umferð herflugvéla yfir borginni. „Og svo örfáar sprengingar sem við heyrum en þetta hefur minnkað töluvert síðan um helgina,“ bætir hún við og á þar við um sprengingarnar frá írönskum flugskeytum sem loftvarnakerfi furstadæmanna hefur náð að skjóta niður. „Þetta er auðvitað mjög mikill rússíbani,“ bætir Sara Björk Þórðardóttir við. „Við erum samt bara á þeim stað sem við tökum við hvaða flugi sem er, Evrópu eða Asíu.“ Hún heldur áfram: „Við erum bara búin að komast að því að það er best fyrir okkur að vera hér. Við erum ekki að fara að komast neitt lengra. Það er bara best að bíða þar til að lofthelgin opnar hér.“ Sigrún Heba bætir þá við að þær viti ekki hvaða fréttum þær eigi að fylgjast með. Þær sjái alls konar myndskeið á samfélagsmiðlum sem þær viti ekki hvort þær geti treyst. „Við treystum eiginlega bara á upplýsingar frá foreldrum okkar eða ferðaskrifstofunni.“
Íslendingar erlendis Íran Bandaríkin Sameinuðu arabísku furstadæmin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Sjá meira