Rannsakar geimveður fyrir Bandaríkjaher Bjarki Sigurðsson skrifar 5. mars 2026 22:01 Björn Bergsson er í doktorsnámi í geimeðlisfræði. Íslenskur geimvísindamaður er hluti af teymi sem fékk tæpan milljarð króna í styrk vegna verkefnis sem Bandaríkjaher hefur mikinn áhuga á. Markmiðið er að geta spáð fyrir um truflanir í gervihnöttum þegar óveður gengur yfir.
Björn Bergsson er doktorsnemi í geimeðlisfræði við Embry-Riddle háskólann í Flórída-ríki. Hann er hluti af rannsóknarteymi sem nýlega fékk milljarð króna í styrk frá yfirvöldum í Bandaríkjunum til að rannsaka hvernig óveður niðri á jörðu getur haft áhrif á gervihnetti úti í geimi. Stormar ganga reglulega yfir Flórída og senda frá sér þyngdaraflsbylgjur sem hafa áhrif á jónahvolfið í nokkur hundruð kílómetra hæð. „Það þarf sem sagt að gera ráð fyrir jónahvolfinu og rafeindunum þar þegar verið er að mæla merki frá gervihnattatunglum. Þau eru notuð í staðsetningarkerfi og önnur mjög mikilvæg kerfi. Þetta er sjóherinn í Bandaríkjunum að setja mikinn pening í að rannsaka því veðurkerfin á jörðu niðri sem búa til lofthjúpsbylgjur sem ferðast alla leið upp í geim geta ýtt við og ruglað til í rafeindunum þar og búið til truflanir,“ segir Björn. Markmiðið er að geta spáð fyrir um truflanirnar. „Þetta er eiginlega eins og að eiga veðurspá nema fyrir geimveður. Sem er þá truflanir í geimumhverfinu. Þá væri hægt að vita þegar það er stormur einhvers staðar af einhverri stærð hvenær megi búast við truflunum í samskiptakerfi okkar. Þetta er skref í þá átt,“ segir Björn. Björn vinnur með gögn úr þrjú þúsund móttökurum eins og þessum sem hér má sjá. Milli þess sem hann skoðar geiminn nýtir hann sér þá útivistarkosti sem Flórída hefur upp á að bjóða. „Ég hef gaman af ýmsum jaðaríþróttum sem hægt er að stunda í Flórída. Ég hef gaman af fallhlífastökki og er mikið að kafa og svona,“ segir Björn.
Bandaríkin Íslendingar erlendis Geimurinn Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira