Óþolandi tafir vegna ágreinings við landeigendur heyri sögunni til Birgir Olgeirsson skrifar 5. mars 2026 17:53 Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku og loftslagsmálaráðherra. Vísir/Anton Brink Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, fór mikinn á iðnþingi Samtaka iðnaðarins í dag þar sem hann boðaði róttækar breytingar á raforkulögum. Breytingar miða að því að ágreiningur við landeigendur tefji ekki þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir um mörg ár. „
Þetta þýðir að framkvæmdir munu geta hafist samhliða samningaviðræðum eða eignarnámsferli og þannig styttum við heildarframkvæmdatíma um marga mánuði eða jafnvel ár, sem þýðir lægri fjármagnskostnaður, áreiðanlegri áætlanir og minni áhætta vegna verðbreytinga á efni og vinnuafli,“ sagði Jóhann Páll Núverandi fyrirkomulag væri óviðunandi og óþolandi og sagðist gera sér fyllilega grein fyrir að þessar breytingar yrðu umdeildar. Jóhann Páll Jóhannsson ásamt Heiðu Björg Hilmisdóttir borgarstjóra og Líf Magneudóttur borgarfulltrúa við friðlýsingu Grafarvogs. Þórdís Björt/Náttúruverndarstofnun „Þetta er allt saman umdeilt, sumt er óþægilegt, en markmiðið er skýrt: einfaldara regluverk, sjálfbær ríkisfjármál og aukin samkeppnishæfni, kröftugri verðmætasköpun á Íslandi. Þar erum það við í stjórnmálunum sem sköpum rammann, og þið sem framkvæmið.“ Hann sagði að undir sinni verkstjórn yrði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hagvaxtarráðuneyti sem ryði burt hindrunum, óþarfa reglubyrði og skriffinnsku og ýti undir vöxt og verðmætasköpun. Talsvert púður í að vinda ofan af óreiðu Þá nefndi hann að talsvert púður hafi farið í að vinda ofan af óreiðu og heimatilbúnum flækjum frá fyrri árum og tók nokkur dæmi. Nefndi hann fyrst að virkjanaleyfi fyrir Hvammsvirkjun hafði verið ógilt vegna atriða sem stjórnvöldum hafði verið bent á að þyrfti að laga en ekki brugðist við. Frá framkvæmdum við Hvammsvirkjun síðastliðið sumar.Anton Brink „Í mínum huga kom aldrei til greina að bíða bara og sjá, heldur stigum við inn til þess að eyða óvissu, lágmarka tafir og lágmarka tjón. Fyrir vikið gátu undirbúningsframkvæmdir haldið áfram á grundvelli bráðabirgðaákvæðis, og nú liggja fyrir bæði varanleg virkjunarleyfi og framkvæmdaleyfi sem hvíla á nýjum og traustum lagagrundvelli.“ Veitingastaðir meðhöndlaðir eins og kjarnorkuver Þá sagði hann ekki langt síðan veitingastaðir voru meðhöndlaðir eins og kjarnorkuver af eftirlitsaðilum, meðal annars vegna vanhugsaðra laga- og reglugerðarbreytinga frá síðustu árum. Jóhann Páll sagði að létt hefði verið á reglugerðarkröfum á veitingastaði og unnið er að sömu breytingum fyrir 104 tegundir atvinnustarfsemi. „Við gengum hratt í að vinda ofan af þeim síðasta sumar, léttum af veitingastöðum starfsleyfisskyldunni þannig að krafan um fjögurra vikna auglýsingatíma féll brott. Með lagafrumvarpi sem ég fer með fyrir ríkisstjórn á morgun gerum við enn róttækari breytingar í sama anda, og léttum auglýsingaskyldunni og kröfunni um 4 vikna umsagnartíma af 104 tegundum atvinnustarfsemi.“ Mengunarreglur keyrðu upp framkvæmdakostnað Þriðja dæmið sem hann nefndi voru stífar reglur um mengaðan jarðveg sem voru settar fyrir örfáum árum, með viðmiðunargildum sem ríma illa við íslenskar aðstæður. „Þetta var gert án viðhlítandi áhrifamats, skapaði óvissu og tafir og keyrði þannig upp framkvæmdakostnað meðal annars við mikilvæga íbúðauppbyggingu hér á höfuðborgarsvæðinu. Nú höfum við, eftir vinnu sem ég setti af stað strax þegar ég tók við embætti, endurskoðað og rýmkað verulega þessi viðmiðunarmörk.“ Sjö sinnum Meira en síðustu tíu ár á undan Þá hafa verið gerðar breytingar á lagaumgjörð rammaáætlunar með fastákveðnum tímafrestum og færri og styttri samráðsferlum. Nýr rammapakki hefur verið samþykktur þar sem Holtavirkjun og Skrokkalda fara í nýtingarflokk. Það eru sjö sinnum fleiri megawött af vatnsafli en rötuðu í orkunýtingarflokk rammaáætlunar síðustu tíu árin á undan. Búið er að hækka mörk vegna jarðhitanýtingar þannig að færri framkvæmdir séu háðar umhverfismati. vísir/ernir Þá sé unnið að því að hækka mörk vegna jarðhitanýtingar þannig að færri framkvæmdir séu háðar umhverfismati. Þá verði einnig ekki lengur gerð krafa um starfsleyfi vegna hverrar borframkvæmdar. Kasta ekki peningum á eftir verðbólgunni Hann sagði gesti iðnþingsins geta treyst því að hallarekstur verði stöðvaður árið 2027. „Og það kemur ekki til greina að fara að kasta peningum á eftir verðbólgunni eða láta undan þrýstingi á Alþingi um stóraukin útgjöld og minni tekjur. Við munum eyða hallanum. Þið munið halda áfram að skapa verðmæti og útflutningstekjur, þannig komum við jafnvægi á þjóðarbúið. Þetta er samvinnuverkefni.“
Umhverfismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Orkumál Jarða- og lóðamál Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sjá meira