Kröpp lægð yfir landinu og úrkoman blönduð Lovísa Arnardóttir skrifar 6. mars 2026 07:28 Úrkoman á ýmist að vera rigning, slydda eða snjókoma. Vísir/Vilhelm Kröpp og djúp lægð er núna vestur af landinu. Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar gengu skilin yfir landið í nótt og erum við nú í hlýjasta hluta veðurkerfisins. Úrkoman á engu að síður að vera blönduð samkvæmt spá, rigning, slydda og jafnvel snjókoma á köflum.
Í dag er þannig spáð suðaustan 15 til 23 metrum á sekúndu og snjókomu í fyrstu, en heldur hægari, suðlægari og dálítil rigning að baki skilanna. Hægari vindur fyrir norðan og austan. Sunnanátt með morgninum, víða 13 til 20 metrar á sekúndu og rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 1 til 7 stig. Él vestantil í kvöld og kólnar. Suðvestan 13 til 23 metrar á sekúndu á morgun, hvassast vestast. Él eða slydduél, en þurrt að kalla norðaustanlands. Hiti 0 til 5 stig. Minni úrkoma á Austurlandi Samkvæmt hugleiðingunum verður úrkoman minni á austurhluta landsins, vindur hægari og hitatölur heldur hærri. Í kvöld verður lægðin aðeins farin að grynnast og dregur þá heldur úr vindi. Á morgun verður vindur suðvestlægari, gæti slegið í storm allra vestast, en hægari annars staðar. Úrkoman orðin heldur vetrarlegri að auki ásamt slæmu skyggni, en að auki mun kólna svolítið. Á sunnudag er síðan útlit fyrir mun skaplegra veður, mun hægari vind og bjartviðri austanlands, en fremur úrkomusamt sunnan- og vestantil. Á vef Vegagerðar má sjá að víða um land er hálka og erfið færð. Víða er krapi á Suður- og Austurlandi og þæfingsfærð á Suðausuturlandi. Ófært er samkvæmt Vegagerð um Dynjandisheiði. Nánar um færð á vef Vegagerðar og um veður á vef Veðurstofu. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Sunnan og suðvestan 13-23 m/s, hvassast vestast. Þurrt að kalla á norðaustanverðu landinu, annars snjó- eða slydduél. Hiti 0 til 4 stig. Hægari og kólnar um kvöldið. Á sunnudag: Sunnan 5-13 og snjókoma eða él vestantil, en hægari og bjart veður austanlands. Frost 0 til 5 stig, en sums staðar frostlaust við sjóinn. Á mánudag: Gengur í allhvassa eða hvassa suðaustanátt með slyddu eða snjókomu og síðar rigningu, en að mestu þurrt norðaustanlands. Hlýnandi veður. Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt. Sums staðar dálitlar skúrir eða él, en bjartviðri norðaustan- og austanlands. Hiti víða 0 til 5 stig yfir daginn. Á miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt. Slydda eða rigning sunnantil síðdegis og hlýnar en bjartviðri og vægt frost fyrir norðan. Á fimmtudag: Útlit fyrir norðaustanátt með ofankomu nyrst og á Vestfjörðum, annars hæg breytileg átt og úrkomulítið. Hiti nálægt frostmarki.
Veður Færð á vegum Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira