Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Jakob Bjarnar skrifar 10. mars 2026 14:45 Hildur Björnsdóttir segir að brotthvarf þeirra Kjartans og Mörtu úr Sjálfstæðisflokknum, yfir í Miðflokkinn, muni kosta talsverða uppstokkun í nefndum og ráðum borgarinnar. vísir/samsett Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni gefur lítið fyrir þær skýringar Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur borgarfulltrúa, sem kynntu að þau hefðu bæði gengið til liðs við Miðflokkinn, að ágreiningur hafi verið um borgarlínuna. Hildur segir það augljósan fyrirslátt sem dæmir sig sjálfur.
Orðrómur þess efnis að Marta Guðjónsdóttir væri á leið til Miðflokksins, í kjölfar þess að hún hlaut ekki náð fyrir augum kjörnefndar, hafði verið uppi um hríð en Marta passaði sig vel á því að láta blaðamenn ekki ná í sig. Það kom hins vegar meira á óvart að Kjartan Magnússon, sem var heldur ekki inni í myndinni með öruggt sæti á lista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, myndi fylgja Mörtu. Blaðamaður Vísis spurði hvort þessi liðhlaup hefðu komið flatt upp á Hildi og þau í borgarstjórnarliðinu? „Veruleikinn er auðvitað sá að það voru hátt í fjögur hundruð manns sem voru til skoðunar að taka sæti á framboðslistanum okkar. Það voru færri sem komust að en vildu. Það fara flestir með okkur, á fullri ferð, inn í þessa mikilvægu kosningabaráttu sem er fram undan. Við erum með gríðarlega öflugan framboðslista, sem samþykktur hefur verið af fulltrúaráðinu, og höldum bara björt og brosandi inn í komandi vikur.“ Fyrirsláttur að ágreiningur um Borgarlínu hafi verið frágangssök En með Mörtu og Kjartan, þau hafa verið þarna síðan elstu menn muna? „Ég skil vel að þau séu vonsvikin að hljóta ekki náð fyrir augum kjörnefndar en auðvitað hefur þetta ekkert með neinn málefnaágreining að gera né neitt slíkt.“ Þau báru það fyrir sig að ágreiningur væri um Borgarlínu? „Það dæmir sig auðvitað sjálft. Ég hef verið skýr með það að Samfylkingin hefur siglt þessu Borgarlínuverkefni í strand. Í um fimmtán ár hefur meirihlutinn eingöngu lagt áherslu á uppbyggingu Borgarlínu sem hefur hvorki raungerst né verið fjármögnuð.“ Hildur óskar þeim Kjartani og Mörtu velfarnaðar. Og það megi alveg fylgja sögunni að hún þakki þeim það liðna.vísir/arnar Hildur hefur ekkert á móti því að tala um borgarlínu, hún segir umferðartafir hafa aukist og stundum með skipulögðum hætti. „Eins og við sjáum til dæmis á þrengingunum á gatnamótunum á Höfðabakka. Sama má sjá í uppleggi á Suðurlandsbraut. Við höfum verið þeirrar skoðunar að þetta verkefni þurfi að endurskoða frá grunni. Það er ekki þar með sagt að við viljum ekki öflugar nútímalegar almenningssamgöngur. En þær mega ekki þrengja að umferð, fjárframlag ríkisins verður að vera tryggt og kostnaðurinn innan skynsemismarka.“ Rík hefð fyrir því að borgarfulltrúar sitji ekki í nefndum fyrir gamla flokkinn Nú er kjörtímabilinu ekki lokið, hvað verður um þessi tvö innan skipulags Sjálfstæðisflokksins? Talsvert hefur verið fjallað um stöðu Helga Áss Grétarssonar sem þó er/var ekki „nema“ varaborgarfulltrúi. Kjartan og Marta eru borgarfulltrúar og þetta hlýtur að kalla á talsverða endurskipulagningu? „Við erum með þessi mál til skoðunar og þetta verður útfært á borgarstjórnarfundi í næstu viku. Það er auðvitað rík hefð fyrir því að þegar borgarfulltrúar skipta um flokka þá verða þeir auðvitað ekki í nefndum fyrir gamla flokkinn.“ Næsti fundur er á þriðjudag eftir viku og þá mun þetta skýrast. „Þetta gæti kallað á uppstokkun í nefndum og ráðum en það er ekki hægt að útkljá nema á formlegum borgarstjórnarfundi. Ég óska þeim auðvitað velfarnaðar á nýjum vettvangi,“ segir Hildur. Og þakkar þeim það liðna? „Já, það má alveg vera með líka,“ segir Hildur og hlær.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira