Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 11. mars 2026 07:03 Ásdís segir Kópavogsbæ hafa gert sitt til að tryggja upplýsingaflæði til íbúanna vegna framkvæmdanna. Bæjarstjóri Kópavogs segir að aðgengi almennings að bílastæðum við Fannborg í miðbæ bæjarins verði tryggt á meðan framkvæmdum stendur sem þó feli í sér nokkuð rask. Hún harmi að íbúar upplifi skort á upplýsingum, bæjaryfirvöld hafi lagt sig fram um að tryggja gott upplýsingaflæði. Fjöldi íbúa hafi lýst yfir ánægju með fyrirhugaðar breytingar á miðbænum. Tilefnið er frétt Vísis um eldri borgara sem er fluttur á brott úr Fannborg 1-9 í miðbæ Kópavogs. Hann hafði um árabil barist gegn framkvæmdum vegna nýs miðbæjar Kópavogs en hann óttaðist fyrst og fremst skort á aðgengi að bílastæðum fyrir eldri borgara og fatlaða íbúa í blokkinni. Sagði hann framkvæmdirnar sem eru hafnar með niðurrifi á Fannborg 2 strax hafa haft skert aðgengi í för með sér. Lögmaður húsfélagsins sagði íbúa kvarta undan mjög stopulu upplýsingaflæði frá Kópavogsbæ. Íbúar viti ekki í hverju framkvæmdirnar eigi að felast, hvernig þær verði framkvæmdar, né hvenær. Þá væri enn óljóst hvernig hægt sé að uppfylla 25 metra regluna svokölluðu á meðan framkvæmdum stendur. Reglan er lögfest og kveður á um að bílastæði hreyfihamlaðra eigi að vera í mesta lagi 25 metra frá húsi. Heildartími framkvæmda eru fimm ár. Skilyrðislaus krafa um að aðgengi verði tryggt „Ekki er verið að skerða aðgengi almennings að svæðinu né að bílastæðum. Aðgengi er tryggt og bílastæðum fyrir hreyfihamlaða komið fyrir í sömu/sambærilegum vegalengdum og þau eru nú á svæðinu,“ segir í skriflegu svari Ásdísar Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs við fyrirspurn Vísis. „Samkvæmt samkomulagi við framkvæmdaraðila er það skilyrðislaus krafa Kópavogsbæjar að þeir tryggi fullnægjandi aðgengi á framkvæmdartíma og sama fjölda bílastæða. Aðkomuáætlun hefur verið samþykkt, þar sem kemur fram hvernig aðgengi og bílastæðamál eru útfærð í hverjum framkvæmdarfasa fyrir sig. Jafnframt er gert ráð fyrir að aðkomuáætlanir geti tekið breytingum með það að markmiði að bæta aðgengi enn frekar ef það koma í ljós möguleikar á síðari stigum.“ Hafi lagt sig fram um að veita upplýsingar „Við hörmum það að fréttaflutningur sé á þá leið að það skorti á upplýsingar hjá bænum. Við höfum einmitt lagt okkur fram um að tryggja gott upplýsingaflæði, fjöldi upplýsingafunda hafa verið haldnir og þeim streymt svo að upptökur séu aðgengilegar. Þá höfum við opnað sérstaka upplýsingasíðu um verkefnið, midbaer.kopavogur.is.“ Ásdís segir að gert sé ráð fyrir upplýsingafundi fyrir íbúa við lok hvers framkvæmdarfasa og byrjun þess næsta. Gert sé ráð fyrir því að haldnir verði að minnsta kosti fjórir upplýsingafundir til viðbótar. Þeir verði kynntir með með dreifibréfum, í SMS-um og í gegnum stafrænt pósthólf þar sem við eigi. Þá lætur Ásdís fylgja með yfirlit yfir upplýsingafundi á vegum bæjarins vegna framkvæmdanna. Þar kemur fram að bærinn hafi haldið sex fundi frá júní 2025 til febrúar 2026. Úr svari Ásdísar: Hér má sjá yfirlit yfir upplýsingafundi: 30. júní 2025: Upplýsingafundur 30. júní 2025 – opinn öllum. 3. júlí 2025: Sérstakur fundur fyrir íbúa Fannborgar 8 þann 3. júlí 2025 (eldri borgarar)) 18. nóvember 2025: Upplýsingafundur fyrir íbúa í nágrenni og aðra hagaðila 18. nóvember 2025 – fyrirkomulag úttekta á húsum sem staðsett eru á áhrifasvæði framkvæmdanna 25. nóvember 2025: Sérstakur fundur fyrir íbúa Fannborgar 8 þann 25. nóvember 2025 ) 28. Janúar 2026: Upplýsingafundur 28. janúar 2026 – opinn öllum. Kynntur fyrsti fasi framkvæmdanna (niðurrifsfasi) 3. febrúar 2026: Sérstakur fundur fyrir íbúa Fannborgar 8 þann 3. febrúar 2026 Auk þess var sérstakur fundur haldinn með stjórn húsfélagsins að Fannborg 1-9 þann 27. maí 2025. Þá barst Kópavogsbæ erindi frá greindum lögmanni húsfélagsins 5. ágúst 2025 sem svarað var formlega með bréfi dags. 3. september 2025, þar sem svarað var öllum spurningum sem lögmaður beindi til Kópavogsbæjar. „Upplýsingarferlið hjá bænum hefur verið ítarlegt og töluvert umfram það sem gerð er krafa um í skipulagsferli. Þá ákvað Kópavogsbær jafnframt að halda áfram ítarlegu upplýsingaflæði á framkvæmdartíma þó svo að engin krafa sé gerð um slíkt.“ Þá hafi einnig verið sett á vef Kópavogsbæjar sérstök upplýsingasíða þar sem íbúar geti nálgast allar upplýsingar tengt fyrirhuguðum framkvæmdum. „Á þessari vefsíðu er einnig hægt að senda inn ábendingar eða spurningar sem er svarað eins fljótt og mögulegt er. Við höfum einnig stofnað sérstakan samskiptahóp sem samanstendur af starfsmanni frá Kópavogsbæ og tengiliðum frá hvorum framkvæmdaaðila fyrir sig.“ Fréttastofa gerði uppbyggingunni í Kópavogi skil síðasta sumar. Margir jákvæðir í garð breytinganna Hafa bænum borist kvartanir vegna málsins? Óttastu að þeim fjölgi eftir því sem framkvæmdasvæðið stækkar? „Það er ljóst að það verður rask en verkefnið er vel undirbúið og allt gert til þess að ónæði og rask sé lágmarkað eins og mögulegt er og sá fasi sem valdi hvað mestu raski taki sem stystan tíma. Kópavogsbær hefur gott eftirlit með framkvæmdunum og fylgist grannt með gangi mála.“ Ásdís segir óvissuna almennt versta. Því hafi bærinn lagt ríka áherslu á að vanda vel til verka þegar kemur að upplýsingagjöf meðan á framkvæmdum standi. Hún segist hafa trú á því að þegar verkefnið verði komið almennilega af stað þá muni viðhorfið breytast og kvartanir verða færri. „Mest um vert er að þetta er upplyfting fyrir svæðið - ekki síst þá íbúa sem þar búa nú þegar. Við höfum fengið fjölda skilaboða frá íbúum á svæðinu sem eru spenntir fyrir komandi uppbyggingu, líta jákvæðum augum á verkefnið og lýsa því fegnir að hér sé loksins verið að laga umhverfi sem hingað til hefur ekki þótt barnvænt. Þá hafa menningarunnendur hrósað þessari framtíðarsýn sem er mjög jákvæð viðbót við sterka menningarmiðju bæjarins í Hamraborg.“ Byrjað er að rífa húsið að Fannborg 2 sem eitt sinn hýsti bæjarstjórnarskrifstofur, beint á móti Fannborg 1-9. Vísir/Vilhelm Kópavogur Bílastæði Mest lesið Íris Helga neitar sök Innlent Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Innlent Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Innlent Skaut á bíla af handahófi með riffli Erlent Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Innlent Samþykktu risaframkvæmd og félagslegt húsnæði rétt fyrir kosningar Innlent Intuens lagði landlækni Innlent „Mikilvægt að sjá til þess að það líði ekki yfir neinn“ Innlent Fleiri fréttir Öðruvísi kappræður í beinni útsendingu með gestum í sal Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Lækka ráðgjöf um hrefnuveiðar vegna villu í útreikningi Grunaður um ítrekuð brot gegn fósturbarni „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Íris Helga neitar sök Tveir bankar spá stýrivaxtahækkun þrátt fyrir kólnun hagkerfis Intuens lagði landlækni „Mikilvægt að sjá til þess að það líði ekki yfir neinn“ Gæsluvarðhald framlengt í Dettifoss-málinu Lausatök gagnrýnd í Grindavíkurskýrslu og bankarnir spá vaxtahækkun Ákvarðanir um aðgengi að Grindavík lausar í reipunum Aðstoðuðu tvö skip í vanda á Breiðafirði Gjöld fyrir frístund rokið upp Samþykktu risaframkvæmd og félagslegt húsnæði rétt fyrir kosningar Nýjar áskoranir í öryggismálum: Norðurslóðir og ytri mörk Evrópu Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Þetta er stefna flokkanna í Reykjavík í skipulags- og húsnæðismálum Skjálfti að stærð 3,6 á Mosfellsheiði Ekki mannúðlegt að halda farþegunum um borð Ráðherra segir fáheyrðar tafir á umhverfismati Sundabrautar Gaf barnabarninu vinninginn Fólk sé orðið leitt á því að sjá sömu flokkana hræra Mun lægri gjöld en úttekt Viðskiptaráðs gefur til kynna Vegfarendur verða að þola Ódrjúgshálsinn enn lengur Sjá meira
Úr svari Ásdísar: Hér má sjá yfirlit yfir upplýsingafundi: 30. júní 2025: Upplýsingafundur 30. júní 2025 – opinn öllum. 3. júlí 2025: Sérstakur fundur fyrir íbúa Fannborgar 8 þann 3. júlí 2025 (eldri borgarar)) 18. nóvember 2025: Upplýsingafundur fyrir íbúa í nágrenni og aðra hagaðila 18. nóvember 2025 – fyrirkomulag úttekta á húsum sem staðsett eru á áhrifasvæði framkvæmdanna 25. nóvember 2025: Sérstakur fundur fyrir íbúa Fannborgar 8 þann 25. nóvember 2025 ) 28. Janúar 2026: Upplýsingafundur 28. janúar 2026 – opinn öllum. Kynntur fyrsti fasi framkvæmdanna (niðurrifsfasi) 3. febrúar 2026: Sérstakur fundur fyrir íbúa Fannborgar 8 þann 3. febrúar 2026 Auk þess var sérstakur fundur haldinn með stjórn húsfélagsins að Fannborg 1-9 þann 27. maí 2025. Þá barst Kópavogsbæ erindi frá greindum lögmanni húsfélagsins 5. ágúst 2025 sem svarað var formlega með bréfi dags. 3. september 2025, þar sem svarað var öllum spurningum sem lögmaður beindi til Kópavogsbæjar.
Kópavogur Bílastæði Mest lesið Íris Helga neitar sök Innlent Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Innlent Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Innlent Skaut á bíla af handahófi með riffli Erlent Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Innlent Samþykktu risaframkvæmd og félagslegt húsnæði rétt fyrir kosningar Innlent Intuens lagði landlækni Innlent „Mikilvægt að sjá til þess að það líði ekki yfir neinn“ Innlent Fleiri fréttir Öðruvísi kappræður í beinni útsendingu með gestum í sal Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Lækka ráðgjöf um hrefnuveiðar vegna villu í útreikningi Grunaður um ítrekuð brot gegn fósturbarni „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Íris Helga neitar sök Tveir bankar spá stýrivaxtahækkun þrátt fyrir kólnun hagkerfis Intuens lagði landlækni „Mikilvægt að sjá til þess að það líði ekki yfir neinn“ Gæsluvarðhald framlengt í Dettifoss-málinu Lausatök gagnrýnd í Grindavíkurskýrslu og bankarnir spá vaxtahækkun Ákvarðanir um aðgengi að Grindavík lausar í reipunum Aðstoðuðu tvö skip í vanda á Breiðafirði Gjöld fyrir frístund rokið upp Samþykktu risaframkvæmd og félagslegt húsnæði rétt fyrir kosningar Nýjar áskoranir í öryggismálum: Norðurslóðir og ytri mörk Evrópu Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Þetta er stefna flokkanna í Reykjavík í skipulags- og húsnæðismálum Skjálfti að stærð 3,6 á Mosfellsheiði Ekki mannúðlegt að halda farþegunum um borð Ráðherra segir fáheyrðar tafir á umhverfismati Sundabrautar Gaf barnabarninu vinninginn Fólk sé orðið leitt á því að sjá sömu flokkana hræra Mun lægri gjöld en úttekt Viðskiptaráðs gefur til kynna Vegfarendur verða að þola Ódrjúgshálsinn enn lengur Sjá meira