ISNIC verðmetið á meira en fjóra milljarða við sölu til sjóðs Stefnis
Allt hlutafé Internets á Íslandi, sem sér um rekstur .is lénakerfisins, var verðmetið á vel yfir fjóra milljarða króna þegar framtakssjóður í rekstri Stefnis keypti meirihluta í félaginu snemma árs í fyrra. Ríkissjóður nýtti sér ekki forkaupsrétt til að stíga inn í viðskiptin.