Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Magnús Jochum Pálsson skrifar 16. mars 2026 13:01 Alex Jones fór í gjaldþrot og þurfti að loka Infowars eftir að hann var dæmdur til að greiða fjölskyldum barna sem myrt voru í skotárásinni í Sandy Hook í Bandaríkjunum um 1,5 milljarð Bandaríkjadala í skaðabætur. Hann var þó fljótur á fætur aftur og hefur haldið útgáfu sinni áfram. AP/Tyler Sizemore Nafn fjölmiðlamannsins Alex Jones hefur á síðustu árum orðið samnefnari fyrir upplýsingaóreiðu og samsæriskenningar í bandarísku samfélagi. Jones hóf feril sinn í Austin í Textas á tíunda áratugnum, stendur á bak við vefmiðilinn og sölusíðuna Infowars og er þekktastur fyrir að boða skrautlegar samsæriskenningar þar sem ríkisvaldið svífst einskis til þess að blekkja almenning.
Áhrif Jones teygja sig aftur á móti langt inn fyrir jaðarinn og inn í miðju bandarískra stjórnmála. Í nýjasta þætti Skuggavaldsins rekja þau Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann upplýsingahernað samtímans í gegnum sögu Jones. Í þættinum lýsa þau því hvernig Jones fann upp nýstárlegt en siðlaust viðskiptamódel sem gengur í stuttu máli út á að skapa skelfingu meðal hlustenda og selja þeim síðan „lausnina“ í formi bætiefna og neyðarbúnaðar. Með þessari aðferð tókst Jones að byggja upp veldi sem um tíma velti tæplega hundrað milljónum króna á dag. Myrkasti kaflinn í ferli Jones snýr að skotárásinni í Sandy Hook grunnskólanum í Connecticut árið 2012. Í stað þess að fjalla um harmleikinn efnislega, hélt Jones því fram í mörg ár að árásin hefði verið sviðsett af stjórnvöldum. Hann gekk svo langt að kalla syrgjandi foreldra fórnarlambanna „harmleikara“ (e. crisis actors) og hélt því fram að börnin hefðu aldrei verið til. Þessi herferð leiddi til þess að fjölskyldurnar urðu fyrir linnulausu áreiti og ofsóknum frá fylgjendum Jones. Að lokum fengu fjölskyldurnar nóg og sóttu Jones til saka fyrir rógburðinn. Málareksturinn sem fylgdi í kjölfarið varð rándýr og mikill fjölmiðlasirkus. Hulda og Eiríkur fara yfir það hvernig Jones tapaði málinu eftir að lögfræðingar hans sendu óvart tveggja ára smáskilaboðasögu úr síma hans til lögfræðinga fórnarlambanna. Gögnin afhjúpuðu hvernig Jones talaði bak við tjöldin um þær gríðarlegu tekjur sem Sandy Hook umfjöllunin skilaði honum og þar með féll lykilvörn hans um að hann hafi aldrei ætlað sér að græða á lygunum. Niðurstaðan varð sögulegur skaðabótadómur upp á 1,5 milljarð dala sem leiddi vitanlega til gjaldþrots Infowars. En þrátt fyrir þetta hrun er Jones langt frá því að vera þagnaður. Hann hefur vaxið á ný á samfélagsmiðlinum X og málflutningur hans er áfram hlekkur í svokölluðum upplýsingaþvotti, þar sem jaðarhugmyndir eru smátt og smátt færðar inn í almannarýmið. Saga hans er dæmi um það hvernig pólitísk sölumennska og sálfræðileg vopnvæðing óttans hafa breytt því hvernig við meðtökum fréttir í dag. Hægt er að hlusta á þátt Skuggavaldsins um Alex Jones og upplýsingahernað samtímans hér að neðan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Skuggavaldið Bandaríkin Skotárás í Sandy Hook-grunnskólanum Tengdar fréttir Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Sagt er að Rothschild-fjölskyldan fjármagni á víxl fasískar og kommúnískar byltingar, stýri veðrinu með geimleiserum, dreifi pestum um jarðarkringluna og jafnvel að hún hafi einkaleyfi á Covid-19. 2. mars 2026 15:20 Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Yfirleitt er ekki eftirsóknarvert að verða skotspónn samsæriskenninga. Orðspor skaðast, tortryggni magnast og allt samtal verður eldfimt. Denver-alþjóðaflugvöllurinn í Colorado er þó óvenjuleg undantekning, því þar tókst stjórnendum smám saman að snúa vörn í sókn og gera samsæriskenningar um flugvöllinn hluta af eigin ímynd. 2. febrúar 2026 13:02 Havana-heilkennið heldur áfram að kveikja samsæriskenningar Þrátt fyrir umfangsmiklar rannsóknir og fjölda opinberra skýrslna hefur ekki enn tekist að ráða gátuna um hið svokallaða Havana-heilkenni. Hundruð starfsmanna í utanríkisþjónustu Bandaríkjanna hafa lýst lamandi svima, nístandi höfuðverk, suði í eyrum og minnistruflunum. Málið er enn óleyst ráðgáta sem heldur áfram að næra sögur um dularfull vopn og leynilegar tilraunir stórvelda. 19. janúar 2026 10:33 Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira
Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Sagt er að Rothschild-fjölskyldan fjármagni á víxl fasískar og kommúnískar byltingar, stýri veðrinu með geimleiserum, dreifi pestum um jarðarkringluna og jafnvel að hún hafi einkaleyfi á Covid-19. 2. mars 2026 15:20
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Yfirleitt er ekki eftirsóknarvert að verða skotspónn samsæriskenninga. Orðspor skaðast, tortryggni magnast og allt samtal verður eldfimt. Denver-alþjóðaflugvöllurinn í Colorado er þó óvenjuleg undantekning, því þar tókst stjórnendum smám saman að snúa vörn í sókn og gera samsæriskenningar um flugvöllinn hluta af eigin ímynd. 2. febrúar 2026 13:02
Havana-heilkennið heldur áfram að kveikja samsæriskenningar Þrátt fyrir umfangsmiklar rannsóknir og fjölda opinberra skýrslna hefur ekki enn tekist að ráða gátuna um hið svokallaða Havana-heilkenni. Hundruð starfsmanna í utanríkisþjónustu Bandaríkjanna hafa lýst lamandi svima, nístandi höfuðverk, suði í eyrum og minnistruflunum. Málið er enn óleyst ráðgáta sem heldur áfram að næra sögur um dularfull vopn og leynilegar tilraunir stórvelda. 19. janúar 2026 10:33