Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Árni Sæberg skrifar 20. mars 2026 14:05 Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Vísir/Anton Brink Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur aflétt starfsleyfisskyldu af sextán flokkum atvinnurekstrar, þar á meðal rekstri dýralæknastofa, heilsugæslustöðva og húðflúrstofa. Í stað starfsleyfisskyldu er nú aðeins gerð krafa um skráningu atvinnurekstrar.
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hafi undirritað reglugerð sem léttir starfsleyfisskyldu af 16 flokkum atvinnurekstrar, með breytingum á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, sem hafi þegar tekið gildi. Ótímabundið Breytingarnar feli í sér að einvörðungu sé gerð krafa um skráningu atvinnurekstrar, í stað starfsleyfisskyldu áður. Meðal þeirra sextán flokka atvinnurekstrar sem nú teljast skráningaskyldir séu dýralæknastofur, gæludýraverslanir, heilsugæslustöðvar, heilsuræktarstöðvar, húðflúrstofur, íþróttahús og leiksvæði. Skráning feli í sér skráningu tiltekins atvinnurekstrar sem tiltekinn er í viðauka reglugerðarinnar í miðlæga rafræna gátt í stað starfsleyfisskyldu og Umhverfis- og orkustofnun hafi gefið út uppfærð samræmd starfsleyfisskilyrði. Skráning sé ekki auglýst í fjórar vikur líkt og starfsleyfi og ekki sé gefin út greinargerð fyrir skráningu. Skráning sé ótímabundin en starfsleyfi sé gefið út til tiltekins tíma. Sé starfsemi hins vegar bæði starfsleyfisskyld og skráningarskyld þá vegi starfsleyfisskyldan þyngra en skráningin og aðeins þurfi að sækja um starfsleyfi. Frekari breytingar í farvatninu „Enn frekari einföldun er í farvatninu að því er varðar starfsleyfi sem veitt eru samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Í frumvarpi um breytt fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits, sem ráðherra hefur farið með fyrir ríkisstjórn, er meðal annars kveðið á um afnám auglýsingaskyldu vegna 104 tegunda atvinnustarfsemi svo fremi sem starfsemin falli ekki undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Í því felst að skilyrði um fjögurra vikna auglýsingu og umsagnatíma áður en starfsleyfi er veitt fellur brott. Mun þetta t.a.m. gilda um gististaði, baðstaði, verkstæði, heilsuræktarstöðvar, ýmsa iðnaðar- og landbúnaðarframleiðslu, skólahúsnæði og íþróttahús,“ segir í tilkynningu.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Stjórnsýsla Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Sjá meira