Aðalmeðferð hafin í máli Helga Bjarts Árni Sæberg skrifar 23. mars 2026 10:34 Aðalmeðferðin fer fram í sal 1 í Héraðsdómi Reykjaness. Vísir/Vilhelm Aðalmeðferð í máli Helga Bjarts Þorvarðarsonar, sem sætir ákæru fyrir að nauðga tíu ára dreng í Hafnarfirði og vændiskaup, hófst í morgun. Hún mun standa yfir í allan dag og ef allt fer samkvæmt áætlun má reikna með að dómur falli innan fjögurra vikna. Allt þinghald í málinu fer fram fyrir luktum dyrum.
Aðalmeðferðin hófst klukkan 09:15 í Héraðsdómi Reykjaness og samkvæmt dagskrá dómstólsins mun hún standa til klukkan 16. Samkvæmt lögum um meðferð sakamála skal kveða upp dóm eigi síðar en fjórum vikum eftir málflutning, ellegar skuli flytja mál á ný. Helgi Bjartur sætir ákæru fyrir að nauðga tíu ára dreng í september í fyrra með því að hafa við hann önnur kynferðismök en samræði og að reyna að hafa við hann samræði. Þá er hann einnig ákærður fyrir að hafa greitt fyrir vændi í Bolholti í Reykjavík sama kvöld. Hann hafði gengið laus síðan hann var handtekinn grunaður um verknaðinn í september. Eftir að rannsókn lögreglu á málinu lauk í janúar ákvað héraðssaksóknari að krefjast gæsluvarðhalds yfir Helga Bjarti. Héraðsdómur hafnaði beiðninni, sá ekki ástæðu til að færa hann í varðhald, en Landsréttur sneri þeirri niðurstöðu við. Helgi Bjartur hefur því sætt gæsluvarðhaldi frá 14. janúar og það hefur verið framlengt í tvígang. Núgildandi gæsluvarðhaldsúrskurður rennur út þann 3. apríl næstkomandi.
Grunaður um kynferðisbrot gegn barni í Hafnarfirði Hafnarfjörður Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira