Elskar að klæða sig upp fyrir jafnvel ekkert Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 25. mars 2026 20:00 Hildur Jónsdóttir Norfjörð ræddi við blaðamann um tískuna. Aðsend „Oftast er ég frekar fljót að setja saman föt en ef það gengur ekki eins og ég hafði ímyndað mér verður oft mikið drama,“ segir hin tvítuga Hildur Jónsdóttir Norfjörð. Hildur er sálfræðinemi, fimleikaþjálfari og vinnur í hlutastarfi í skartgripaversluninni Hildi Hafstein og hefur mikla ástríðu fyrir tísku og klæðaburði.
Kvenlegar flíkur sækja meira á hana með árunum og sömuleiðis leggur hún mikla áherslu á góða nýtingu á flíkum. Blaðamaður ræddi við Hildi um fataskápinn og tískuna. Hildur er mikill töffari.Aðsend Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna? Það sem mér finnst skemmtilegast við tískuna er hvað hún getur verið fjölbreytt og breyst eftir árstíðum, bæði hvað varðar liti og efni. View this post on Instagram A post shared by Hildur Jónsdóttir Norðfjörð (@hildurjonsd_) Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju? Uppáhalds flíkin mín er kúrekajakkinn minn sem Dísa frænka mín keypti fyrir mig þegar hún bjó í Köben í fyrra. Ég held mikið upp á hann af því hann fer með öllu og gerir „basic“ klæðaburð strax miklu skemmtilegri. Kúrekajakkinn er skemmtilegur.Aðsend Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni? Nei í rauninni ekki. Oftast er ég frekar fljót að setja saman klæðnað en ef það gengur ekki eins og ég hafði ímyndað mér verður oft mikið drama. Hildur er almennt frekar fljót að setja saman föt en þegar eitthvað fitt gengur ekki upp getur dramað bankað upp á.Aðsend Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? Ég myndi lýsa stílnum mínum sem blanda af skandinavískum stíl og spænskum. Stílhreinn og einfaldur. Lítur oft út fyrir að vera „basic“ en í rauninni er mikil hugsun á bak við hann. Kúrekajakkinn er skemmtilegur.Aðsend Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá? Já mjög mikið, þegar ég var á fyrsta ári í MR klæddi ég mig oft í frekar víð föt sem voru mjög oft af nytjamarkaði. Ég klæddi mig eiginlega bara frekar strákalega. Núna klæði ég mig mun kvenlegar og helst frekar í þrengri buxum og skyrtum. Hildur leitar meira í þrengri flíkur með árunum.Aðsend Nýturðu þess að klæða þig upp? Já ég nýt þess mjög mikið. Mér finnst mjög gaman að klæða mig upp jafn vel bara til þess að gera ekki neitt. Það er gaman að klæða sig upp jafnvel þótt tilefnið sé lítið.Aðsend Hvað skiptir þig mestu máli í klæðaburði? Það sem skiptir mig mestu máli í klæðaburði er að líða vel og þæginlega í því sem ég klæðist en líka að það hafi karakter og sé stílhreint og smekklegt. Þægindi, karakter og smekklegheit spila veigamikið hlutverk í fatavali Hildar.Aðsend Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni? Ég sæki innblástur til mömmu minnar. Ég gríp mjög oft föt úr skápnum hennar mömmu þegar ég finn ekkert í mínum eigin fataskáp. Við erum með svipaðan stíl. Ætli við sækjum ekki báðar innblástur til Spánar, erum báðar mikið í skyrtum og blússum. Glæsilegar mægður, Guðrún og Hildur Norfjörð.Aðsend Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði? Ég reyni að forðast micro trends eins og ég get. Áður en ég kaupi flík reyni ég alltaf að hugsa: Mun ég vilja klæðast þessu eftir tvö ár? og jafnvel: Hefði ég viljað klæðast þessu fyrir einu ári? Mér finnst mikilvægt að eiga fötin mín lengi og ég lít mikið upp til mömmu minnar í þessu samhengi. Hún á fötin sín oft í tuttugu ár. Þess vegna finnst mér mikilvægt að kaupa föt sem eru frekar tímalaus. Tímalausar flíkur heilla Hildi.Aðsend Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju? Eftirminnilegasta flík sem ég hef verið í er líklega vintage kjóllinn minn sem ég útskrifaðist í. Ég var með mjög ákveðna týpu af kjól í huga og leitaði mjög lengi á netinu en það var ekki fyrr en Hildur frænka mín rakst á þennan kjól á breskri vintage síðu sem ég var loksins sátt. Hildur er glæsileg í Zimmerman kjólnum í Mexíkó.Aðsend Hvað finnst þér heitast fyrir 2026? Heitast fyrir 2026 eru bootcut gallabuxur, skyrtur, flauel, skinny jeans, blúndur og leður. Hildur er með puttann á púlsinum í tískunni.Aðsend Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku? Minna er meira eða less is more. Flottustu outfitin finnst mér oft vera þau sem eru einföld og snyrtileg. Minna er meira að mati Hildar.Aðsend
Tíska og hönnun Tískutal Mest lesið Eignaðist fyrstu milljónina fimmtán ára og keypti íbúð átján ára Lífið Vann að tveimur verðlaunabókum en fékk ekki boð á hátíðina Lífið Kúltúrhjón selja sjarmerandi eign í 101 Lífið Segist skilin út undan vegna MAGA-tengingar sinnar Tónlist Hvað veistu um… IKEA? Lífið Lítil prinsessa á leiðinni hjá Sóleyju Smáradóttur Lífið Gunnar Smári lagstur í sjúkrarúm Maríu Lilju Lífið Siggi og Alma orðin foreldrar Lífið Myndaveisla: Þjóðlegir Kvenskælingar dönsuðu og sungu Lífið Sassa selur í Skerjafirði Lífið Fleiri fréttir Elskar að klæða sig upp fyrir jafnvel ekkert Guðbjörg hlaut heiðursverðlaun í London Skarsgård seiðandi senuþjófur Dorrit sprengir skvísuskalann á skíðum Hátískuhönnuður yfir í hraðtískuheiminn Klæddist fimm kílóum af mannahárum „Meðan ég er ánægð skiptir álit annarra engu“ Óþekkjanleg á Óskarnum Súperstjarna tískuheimsins klæddi Laufeyju Elín Hall í sjóðheitri íslenskri hönnun Þau flottustu og mest púkó á Óskarnum Hvetur karlmenn til að leggja sig meira fram Heitasti keramiker landsins í fíling Chappell Roan elskar Fischersund Tískan vopnið í keppni gegn krabbameini Slakur með 62 milljón króna hálsmen Björk glæsileg í indverskri hönnun Segir nei takk við jakkafatapésana Best klæddu pör sögunnar Björn skellti sér strax í sokkana Afhjúpa þemað fyrir tískuveislu ársins Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Sjá meira