Sjö af hverjum tíu fýlum með plast í maganum Lovísa Arnardóttir skrifar 28. mars 2026 21:44 Fugl með plasti. Myndin er úr safni og er frá Umhverfis- og orkustofnun. Umhverfis- og orkustofnun Nær sjö af hverjum tíu íslenskum fýlum eru með plast í meltingarveginum. Þetta kemur fram í niðurstöðum vöktunar Umhverfis- og orkustofnunar á magni plasts í meltingarvegi fýla árið 2025. Sjómenn söfnuðu fuglunum fyrir vöktunina. Allir höfðu þeir drukknað.
Niðurstöður rannsóknar Náttúrustofu Norðausturlands fyrir hönd Umhverfis- og orkustofnunar, UOS, sýna að plast fannst í 68 prósent af þeim 22 fýlum sem voru rannsakaðir. Fýlarnir komu í veiðarfæri frá seinni hluta apríl til byrjunar júní. Þar með er heildarsýnastærð komin upp í 267 fýla þau átta ár sem vöktunin hefur staðið yfir. Karlfuglar eru þar í miklum meirihluta, 78 prósent, en í ár var hlutfall þeirra 77 prósent. Í átján prósent tilvika var magn plasts yfir viðmiðum OSPAR frá árinu 2020 um að minna en 10 prósent af fýlum hafi meira en 0,1 g af plasti í meltingarvegi yfir að minnsta kosti fimm ára tímabil þar sem sýnastærð nær að lágmarki 100 fýlum. Viðmiðunargildið var samþykkt árið 2020. Plastið sem fannst í fýlunum við vöktun í fyrra. Umhverfis- og orkustofnun Ísland gerðist aðili að OSPAR-samningnum um verndun Norðaustur-Atlantshafsins árið 1997. Í samningnum eru ákvæði um reglubundna vöktun á ástandi hafsvæðisins. Rannsóknir á plasti í meltingarvegi fýla er viðurkennd aðferð til vöktunar á plasti í hafinu. Hér á landi hófst sú vöktun árið 2018. Allir fýlarnir frá Borgarfirði eystri Í skýrslu Náttúrustofu Norðausturlands kemur fram að alls hafi fengist 22 fýlar til rannsóknar og að þeir hafi allir komið frá Borgarfirði eystri eins og árið áður. Í heild hafi frá upphafi vöktunar fengist 267 fýlar. Alls hafi 73 prósent þeirra verið með plast í meltingarvegi. Að meðaltali hafa fýlarnir samkvæmt skýrslunni verið með 5,4 plastagnir og meðalþyngd plasts í fýl 0,0854 g. Hlutfall fýla með yfir 0,1 g af plasti á öllu tímabilinu er 16 prósent. Í tilkynningu frá Umhverfis- og orkustofnun kemur fram að 6,7 plastagnir voru að meðaltali í hverjum fýl og að mest hafi fundist 59 plastagnir í einum fugli. Náttúrustofa Norðausturlands sá um rannsóknir og krufningar. „Fýlar gleypa plast sem flýtur á yfirborði sjávar og rugla því oft saman við fæðu. Þegar plast kemst inn í lífverur getur það valdið líkamlegum skaða og einnig borið með sér efni sem geta haft áhrif á heilsu dýra. Þar sem lífverur éta hver aðra getur plast og tengd efni borist áfram upp fæðukeðjuna og haft áhrif á fleiri tegundir í vistkerfinu svo sem fisk og mannfólk,“ segir Katrín Sóley Bjarnadóttir, sérfræðingur í teymi hafs og vatns hjá UOS. Skipting sýna (fjöldi fýla) eftir hafsvæðum við Ísland 2018 - 2025.Náttúrustofa Norðausturlands Alvarlegar afleiðingar Hún segir afleiðingarnar geta verið alvarlegar. „Plast getur sært eða stíflað meltingarfæri fugla. Skaðleg efni í eða á plastinu geta einnig truflað hormónastarfsemi, ónæmiskerfi og atferli fullorðinna fugla. Afleiðingar geta verið færri ungar og verri afkoma.“ Katrín segir ýmislegt hægt að gera en að brýnast sé að minnka plastnotkun í samfélaginu, bæði í atvinnulífi og hjá einstaklingum. Þá sé einnig mikilvægt að tryggja að sé plast notað fari það í réttan farveg og endi ekki í náttúrunni. Þekktir fyrir að gleypa úrgang í hafi Í skýrslu Náttúrustofunnar kemur einnig fram að rannsóknir á plasti í meltingarvegi fýla sé viðurkennd aðferð til vöktunar á plasti í hafinu. Fýlar séu algengir fuglar á norðurslóðum sem afli sér eingöngu fæðu á hafi úti, eru fyrst og fremst yfirborðsætur og þekktir fyrir að gleypa alls kyns úrgang. Ólíkt mörgum öðrum tegundum æli fýlar ekki ómeltanlegum hlutum heldur safnist þeir fyrir í maga og fóarni, þar sem þeir brotna smám saman niður í smærri búta sem að lokum skila sér út með driti. Plast sem finnist í kynþroska fýls hafi því líklega verið að safnast upp frá síðasta varptíma. Í skýrslunni segir að vöktunin fylgi staðlaðri aðferð og að vöktunin hafi fyrst hafist árið 2002 og síðar verið stækkað á ný. Fuglarnir sem eru notaðir í vöktunina við strendur Norðursjávar eru þeir sem finnast dauðir í fjöru en þar sem hér á landi er ekki eins mikið um fjöruvöktun var farin sú leið að safna fýlum sem höfðu krækst í veiðarfæri línubáta og drukknað. Sjómenn söfnuðu þeim saman og skráðu stað- og dagsetningu. Fuglarnir voru geymdir í frysti fram að krufningu en krufning fór fram í Hollandi í sameiningu með öðrum þátttakendum undir handleiðslu sérfræðinga. Ítarlega er farið yfir aðferðafræðina í skýrslunni. Ekki nóg til að álykta Í umræðu við skýrslu Náttúrustofunnar segir að áður en vöktunin hófst fyrir tveimur árum hafi plast í meltingarvegi fýla verið rannsakað tvisvar áður, 2011 og svo 2013 og 2014. Hlutfall plasts í meltingarvegi fýlanna var einnig hátt og töluvert hærra í seinni rannsókninni. Þar voru fýlar skotnir á Vestfjörðum. Í fyrri rannsókninni var 58 fýlum safnað frá línubátum sem voru á veiðum úti fyrir Hornströndum í apríl 2011. Í þeirri rannsókn fannst plast í 79% fýla og 28% voru með meira en 0,1 g af plasti í sér. Úr seinni rannsókninni hafa verið gefnar út frumniðurstöður sem gefa til kynna að 90% fýlanna hafi verið með plast í meltingarvegi og 47,5% með yfir 0,1 g. Þar voru 40 fýlar skotnir á Vestfjörðum, 37 í október 2013 og 3 í febrúar 2014. Þar kemur einnig fram að ekki sé rétt að draga miklar ályktanir út frá þessum fjórum tímabilum með fimm ára keðjumeðaltali, þó svo að hlutfall plasts virðist fara vaxandi. „Mikilvægt er að sýnastærð sé góð til að gögnin verði sem áreiðanlegust,“ segir að lokum. Fréttin hefur verið leiðrétt. Rannsókn og krufning var unnin af Náttúrustofu Norðausturlands ekki Náttúrustofu Austurlands.
Dýr Umhverfismál Sjávarútvegur Fuglar Tengdar fréttir Örplast fannst í fýlum og kræklingi við Íslandsstrendur Umhverfisstofnun lét rannsaka plastmengun í hafinu við Ísland. 14. janúar 2019 11:12 Rannsókn á plastmengun í maga fýla á Íslandi er hafin Aukið fjármagn veitt til rannsókna sem tengjast plastmengun. Rannsókn á fýlum er þekkt í Norðursjó en stunduð í fyrsta sinn á Íslandi. Niðurstöður munu liggja fyrir í lok árs. Vöktun verður haldið áfram í lengri tíma. 17. maí 2018 06:00 Brýnt að bæta skólphreinsun að mati Umhverfisstofnunar Afar mikilvægt er að bæta skólphreinsun hér á landi að mati Umhverfisstofnunar til að koma í veg fyrir frekari plastmengun. Í nýlegum rannsóknum fannst plast í sjö af hverjum tíu fýlum og allt að helmingi kræklings. 14. janúar 2019 19:00 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Sjá meira
Örplast fannst í fýlum og kræklingi við Íslandsstrendur Umhverfisstofnun lét rannsaka plastmengun í hafinu við Ísland. 14. janúar 2019 11:12
Rannsókn á plastmengun í maga fýla á Íslandi er hafin Aukið fjármagn veitt til rannsókna sem tengjast plastmengun. Rannsókn á fýlum er þekkt í Norðursjó en stunduð í fyrsta sinn á Íslandi. Niðurstöður munu liggja fyrir í lok árs. Vöktun verður haldið áfram í lengri tíma. 17. maí 2018 06:00
Brýnt að bæta skólphreinsun að mati Umhverfisstofnunar Afar mikilvægt er að bæta skólphreinsun hér á landi að mati Umhverfisstofnunar til að koma í veg fyrir frekari plastmengun. Í nýlegum rannsóknum fannst plast í sjö af hverjum tíu fýlum og allt að helmingi kræklings. 14. janúar 2019 19:00