Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Eiður Þór Árnason skrifar 5. apríl 2026 23:55 Jóhann Gunnar Stefánsson, fyrrverandi formaður Félags sumarhúsaeigenda í Úthlíð. Veitur eru hluti af Orkuveitunni. Aðsend/Vísir Sumarhúsaeigandi í Úthlíð í Bláskógabyggð segir vatnsskort hafa verið viðvarandi vandamál á svæðinu um árabil og gagnrýnir Veitur harðlega fyrir að hafa ekki gripið til frekari ráðstafana. „Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum og bregðast við vandamálinu er því algert.“
Þetta segir Jóhann Gunnar Stefánsson sem er jafnframt fyrrverandi formaður Félags sumarhúsaeigenda í Úthlíð. Hann hefur átt hús í Úthlíð í 32 ár, segist ítrekað hafa orðið var við lítið vatnsmagn og tvisvar upplifað algjört vatnsleysi, núna síðast um páskana. Veitur segja að staðan nú sé komin til vegna viðvarandi þurrkatíðar. Jóhann segir Veitur hafa fengið að tengjast sveitaveitu Bláskógabyggðar líkt og hafi áður verið gert í svipuðum aðstæðum til að bjarga ástandinu fyrir páskahelgina en þessi lausn hafi dugað skammt. „Sú leið dugar hins vegar ekki lengur þar sem veitur Bláskógabyggðar anna ekki þessu aukna álagi héðan úr Úthlíð nú um páskahelgina. Það var því lokað fyrir þá innspýtingu til að Bláskógaveita gæti uppfyllt þarfir sinna viðskiptavina.“ Úthlíð sé ekki þeirra á meðal en sumarhúsaeigendur þar greiði samt sem áður fasteignagjöld til Bláskógabyggðar. Þekkt vandamál „Í grófum dráttum er ástandið þannig að Veitur gera lítið annað en að tilkynna fólki um núverandi ástand en ekki það sem fram undan er, hvað þá að koma fram með einhverja lausn.“ Jóhann fullyrðir að vatnsþörfin í Úthlíð sé tvöföld á við það sem vatnslindin ofan við Austurhlíð í Bjarnarfelli, þaðan sem kalda vatnið er sótt, geti staðið undir. Því vanti mikið upp á þegar mikill mannfjöldi er á svæðinu. „Þetta er gömul frétt og löngu þekktur veruleiki og hefur gerst áður. Veitur hafa hins vegar aldrei brugðist við vandamálinu nema með því að senda á sumarhúsaeigendur SMS þegar skaðinn er skeður með beiðnum um að fækka klósettferðum og taka styttri sturtuferðir.“ Fyrir ofan sumarhúsahverfið sé að finna mikla uppsprettu af köldu vatni meðfram vatnasvæði Brúarár sem hægt væri að nýta, að sögn Jóhanns. Sumarhúsahverfin í Brekkuskógi, Reykjaskógi og Miðhúsaskógi hafi meðal annars nýtt sér þennan möguleika. „Af hverju hafa Veitur ekki nýtt sér þann kost? Er staðan virkilega þannig að sumarhúsaeigendur í Úthlíð verði að taka sig saman og sjá sjálfir um öflun á fersku vatni vegna vanhæfis Veitna til að sinna þessu? Þá greiða sumarhúsaeigendur gjald fyrir alla þá þjónustu sem þeim er ætlað en fá jafnvel ekki.“ Veitur segja þetta vera í annað skiptið Veitur segja að vatnsstaðan fyrir Úthlíð hafi einungis tvisvar verið það lág undanfarin ár að Bláskógarbyggð hafi aðstoðað fyrirtækið við að bæta upp lága vatnsstöðu á vatnsupptökusvæðinu. Í bæði skiptin hafi það verið vegna viðvarandi þurrkatíðar. „Um páskana var vatnsstaða hjá sveitarfélaginu líka of lág til að hægt væri að nýta úr þeirri veitu. Úrkoma hefur verið í lágmarki frá því í nóvember, en slíkt hefur mikil áhrif á vatnsból,“ segir í yfirlýsingu frá Silju Ingólfsdóttur, upplýsingafulltrúa Veitna. Fyrirtækið sé í góðu samtali við sveitarfélagið og þjónustuaðila á svæðinu. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum frá Veitum.
Bláskógabyggð Vatn Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira