Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rafn Ágúst Ragnarsson og Eiður Þór Árnason skrifa 6. apríl 2026 17:02 Undirstaðan hefur líklega gefið eftir. Aðsend Af myndum að dæma hefur stærðar gámur steypst niður af Fjósakletti og lent á hvolfi við leikvöllinn í Herjólfsdal. Fréttastofu bárust þessar myndir úr Herjólfsdal í Vestmannaeyjum síðdegis í dag. Gámurinn, sem er mjög stór, hefur með einhverju móti oltið og skilið djúpar rákir eftir sig í hlíðinni.
Valgeir Baldursson, forstjóri fyrirtækisins Terra sem á gáminn, segir þetta koma sér á óvart og hann hafi ekki heyrt af öðru eins. Gámur á borð við þennan sé nokkur tonn að þyngd og þetta bendi til þess að miklir kraftar hafi verið þarna að verki. Gámurinn verði sóttur og starfsfólk Terra muni laga til á svæðinu. Valgeir segir að engin önnur mál hafi komið inn á borð til Terra vegna óveðursins í dag. Undirstaðan hefur líklega gefið eftir.Aðsend Á ekki von á því að börn hafi verið í hættu „Þetta gerist nú ákaflega sjaldan af því að þeir eru nú upp á nokkur tonn þessir gámar. Ég veit ekki hvað hefur valdið því að hann hefur farið af stað. Gámurinn hefur væntanlega farið af stað í einhverju heljarinnar veðri,“ segir Valgeir. Annað eins hafi ekki gerst síðan hann hóf störf hjá fyrirtækinu. Gámurinn lenti á leiksvæði líkt og áður segir en Valgeir á ekki von á því að börn hafi verið þar í hættu, „Það er náttúrulega afskaplega vont ef einhver börn hafi verið að leika þarna en ég dreg það nú í efa að börn séu að leika í veðri sem gerir það að verkum að gámur eins og þessi hreyfist.“ Hann lenti ekki nema fáeinum skrefum frá aparólunni.Aðsend Fréttin hefur verið uppfærð með svörum frá Terra.
Veður Vestmannaeyjar Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira