Hegðun Trumps vonbrigði Eiður Þór Árnason skrifar 7. apríl 2026 21:03 Snorri Másson er þingmaður og varaformaður Miðflokksins. Vísir/Vilhelm Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, telur að kjósendur Donalds Trump Bandaríkjaforseta hafi orðið fyrir vonbrigðum vegna stríðsreksturs stjórnvalda í Íran. Hann segir málflutning forsetans óboðlegan. „
Vonbrigði og skilningsleysi hljóta að vera ráðandi tilfinningar hjá mörgum kjósendum sitjandi Bandaríkjaforseta, sem óskuðu sér breyttrar nálgunar á landamærum, betri efnahags og minna woke-brjálæðis. Ekki síst kusu menn Trump þó vegna boðaðrar friðarnálgunar í stað frekari inngripa Bandaríkjahers á veraldarsviðinu. Ekki aðeins hafa þessar vonir brugðist, heldur er farið af fullum þunga í þveröfuga átt og frumkvæði haft að stigmagnandi styrjaldarátökum,“ skrifar Snorri í færslu á Facebook-síðu sinni. Með skrifunum deilir hann skjáskoti af umtalaðri færslu Trumps á Truth Social þar sem hann boðar að „heil siðmenning deyi í nótt“ ef yfirvöld í Íran verði ekki við kröfum Bandaríkjastjórnar. „Ég vil ekki að það gerist að það gerir það líklega,“ skrifaði Trump jafnframt. Hótunin tengist fresti sem forsetinn veitti Írönum til að opna Hormússund sem hann hefur ítrekað framlengt. Trump hefur nú gefið út að fresturinn renni út í kvöld. Vonar að um sé að ræða innantómar hótanir Snorri túlkar þessi orð forsetans á þann hátt að hann sé að hóta hernaðaraðgerðum af óþekktri stærðargráðu í samtímasögunni, aðgerðir sem „gætu orðið upphafið að atburðarás sem enginn veit hvar endar.“ „Allra helst vonar maður að þetta séu innantómar hótanir Bandaríkjaforseta sem er kominn í krappa stöðu og að í staðinn setjist menn við samningaborðið, en það afsakar aldrei þennan óboðlega málflutning,“ bætir þingmaðurinn við. Samflokksmaður vildi að Trump fengi friðarverðlaun Dæmi eru um að Miðflokksmenn hafi verið velviljaðri í garð Trumps í gegnum tíðina. Til að mynda viðraði Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, þá hugmynd á Alþingi í október 2025 að forseti þingsins beitti sér fyrir því að Trump hlyti friðarverðlaun Nóbels. Kom sú yfirlýsing í kjölfar þess að vopnahlé náðist á Gasa. Könnun Prósents sem framkvæmd var fyrir bandarísku forsetakosningarnar 2024 sýndi að 41 prósent svarenda sem sögðust ætla að kjósa Miðflokkinn hafi jafnframt viljað sjá Trump vinna. Var þetta langhæsta hlutfallið meðal stuðningsfólks einstakra flokka. Í fyrra kallaði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, eftir því að íslensk stjórnvöld myndu efla tengsl sín við Bandaríkin og bjóða Trump til Íslands. Virtist Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra taka vel í þessar hugmyndir. Sigmundur Davíð hefur þó einnig gagnrýnt forsætisráðherra með því að líkja henni við „Trump okkar Íslendinga.“ Lét hann ummælin falla í tengslum við frumvarp um hækkun veiðigjalda og að ríkisstjórninni hefði ekki tekist að semja um lok þingstarfa í júlí í fyrra. „Hæstvirtur forsætisráðherra, Kristrúnu Frostadóttur, Trump okkar Íslendinga, tekst ekki enn að ljúka þingstörfum. Þó verð ég að gæta sanngirni gagnvart Bandaríkjaforseta. Hann er nýbúinn að koma í gegn stærsta frumvarpinu sínu en gerði það eftir marga sólarhringa af samtölum við þingmenn til að reyna að miðla málum og semja um framgang málsins. Því er ekki að fara fyrir hæstvirtum forsætisráðherra Íslands,“ sagði Sigmundur Davíð í ræðustól Alþingis síðasta sumar. Heimildin hefur fjallað um fundi Miðflokksmanna með repúblikönum auk samtaka og hugveitu með tengsl við hina svokölluðu MAGA-hreyfingu sem er hliðholl Trump Bandaríkjaforseta. Stendur MAGA fyrir Make America Great Again sem er þekktasta kosningaslagorð Trumps.
Miðflokkurinn Donald Trump Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Tengdar fréttir Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Bandaríkjaforseti virðist hóta kjarnorkustríði á hendur Íran í vanstilltri færslu á samfélagsmiðli. Þar fullyrðir hann að „heil siðmenning deyi út í nótt“. Hótunin tengist fresti sem forsetinn gaf Írönum að opna Hormússund og hann hefur ítrekað framlengt. 7. apríl 2026 14:44 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira
Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Bandaríkjaforseti virðist hóta kjarnorkustríði á hendur Íran í vanstilltri færslu á samfélagsmiðli. Þar fullyrðir hann að „heil siðmenning deyi út í nótt“. Hótunin tengist fresti sem forsetinn gaf Írönum að opna Hormússund og hann hefur ítrekað framlengt. 7. apríl 2026 14:44