Felur í sér „verulega áhættu“ fyrir efnahagsstöðugleika og magnar hagsveiflur
Fjármálaráð fer hörðum orðum um ákvörðun stjórnvalda að vísitölutengja bætur almannatrygginga, þar sem verið sé að bregðast við „ofmetnum“ vanda, og segir afleiðingarnar vera „veruleg áhætta“ fyrir stöðugleika í efnahagslífinu með því auka sjálfvirkni í útgjaldaþróun, magna hagsveiflur og minnka getu ríkisins til að beita mótvægisaðgerðum. Í ljósi reynslu annarra þjóða þá „sætir það furðu“, að mati ráðsins, að slíkt kerfi sé tekið upp, einkum þegar litið er til þess að tekjur öryrkja hafa vaxið hraðar en vinnandi fólks undanfarin áratug.
Tengdar fréttir
Hörð gagnrýni þegar tenging bóta við launavísitölu var samþykkt
Frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um tengingu launavísitölu við almannatryggingar var samþykkt á Alþingi í dag. Frumvarpið sætti töluverðri gagnrýni af þingmönnum minnihlutans.
Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun
Seðlabanki Íslands gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um tengingu almannatrygginga við launavísitölu, í minnisblaði sem barst velferðarnefnd Alþingis fyrir helgi.
Myndi hjálpa töluvert að fá skilaboð um að það yrðu ekki átök á vinnumarkaði
Það myndi draga úr óvissu og slá á hækkun verðbólguvæntinga ef aðilar vinnumarkaðarins kæmu strax út með þau skilaboð að það væru ekki að fara hefjast átök á vinnumarkaði með því að virkja uppsagnarákvæði kjarasamninga, að sögn seðlabankastjóra. Að því marki sem frumvarp stjórnvalda sem miðar að því að tengja bætur almannatrygginga við launavísitölu hefur áhrif á trúverðugleika ríkisfjármála þá væri það jákvætt innlegg að falla frá þeim áformum við núverandi aðstæður.