Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 11. apríl 2026 13:27 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kynnti nýtt útspil í Kópavogi í dag. Samfylkingin Nýkynntar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa ekki vakið hrifningu innan bankanna eða verkalýðshreyfingarinnar. Innt eftir viðbrögðum segir Kristrún Frostadóttir útspilið sem kynnt var í gær væri framlag ríkisstjórnarinnar til þess að „breyta umræðunni og breyta því skjóli sem felst í því að við tölum okkur upp í verðhækkanir“.
Í kvöldfréttum Sýnar í gær sagði hagfræðingur Íslandsbanka að aðgerðirnar virtust sérsniðnar utan um forsenduákvæði kjarasamninga. Áhrifin yrðu tímabundin og líklegt að verðbólga minnki fyrst lítillega en aukist á nýjan leik skömmu eftir að forsenduákvæði kjarasamninga komi til endurskoðunar. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar lýsti sömuleiðis yfir vonbrigðum með aðgerðirnar og sagði þær ekki duga til að afstýra kjaraviðræðum í haust. Þrátt fyrir að aðgerðirnar séu, að mati Sólveigar Önnu, til þess eins gerðar að forða því að kjarasamningar falli úr gildi. Áhrif á vísitöluna en vonandi líka á væntingar Innt eftir viðbrögðum við gagnrýninni sagði Kristrún mikilvægt að „detta í nýjan takt“. „Við viljum breyta umræðunni og breyta því skjóli sem felst í því að við tölum okkur upp í verðhækkanir. Í að við fáum frekari verðþrýsting niður á við og það er það sem þetta innlegg okkar í ríkisstjórninni er. En það er auðvitað háð því að fyrirtæki og aðilar taki þetta til sín á næstu mánuðum. Ég hef fulla trú á því að þetta muni hafa áhrif. Þetta mun hafa áhrif strax á vísitöluna en líka vonandi á væntingar,“ sagði hún. Kristrún kynnti þrjú samvinnuverkefni ríkis og sveitarfélaga í Kópavogi í dag. Útspilið ber yfirskriftina Tökum ábyrgð hvert á öðru og felur í sér þak á leikskólagjöldum, hundrað prósenta systkinaafslátt, uppbyggingu hjúkrunarrýma og einföldun leyfisveitingaferla. „Í gær kynntum við lækkun á dælunni til að taka á hækkuðu olíuverði en í dag erum við að kynna þetta útspil: Tökum ábyrgð hvert á öðru, þar sem við erum að tala um að lækka kostnað barnafólks, við erum að halda áfram að hlúa að fólkinu sem byggði landið og svo erum við að auðvelda rekstur og uppbyggingu eins og við höfum gert og sýnt að við getum í ríkisstjórninni,“ segir hún. Hár barnaskattur „Við erum að sjá sveitarfélög, til dæmis hérna í Kópavogi, þar sem er verið að leggja miklar álögur á barnafólk. Með því að leggja þetta þak á hringinn í kringum landið erum við að hlífa barnafjölskyldum við allt að 450 þúsund króna kostnaði á ári ef við horfum til þess hvernig gjaldskráin er í Reykjavík og þetta er býsna hár barnaskattur,“ segir Kristrún. Auk leikskólamálanna boðar Kristrún þjóðarátak í umönnun eldra fólks og uppbyggingu yfir 1500 hjúkrunarrýma þannig að árið 2027 verði búið að helminga biðlistann eftir hjúkrúnarrýmum.
Efnahagsmál Kjaramál Verðlag Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vinnumarkaður Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira