„Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Eiður Þór Árnason skrifar 18. apríl 2026 00:17 Rita ber Útlendingastofnun ekki góða söguna. Aðsend/vísir Útlendingastofnun hefur hafnað því að veita konu sem fædd er og uppalin á Íslandi íslenskan ríkisborgararétt. Hún furðar sig á málsmeðferð stofnunarinnar.
Rita Didriksen er 63 ára og hefur búið á Íslandi mestalla sína tíð. Hún á íslenskan eiginmann og börn en foreldrar hennar eru færeyskir. Í ljósi þess fæddist hún með danskan ríkisborgararétt og segist ekki hafa leitt hugann mikið að því þegar hún var yngri. Þegar loks kom að því að sækja um íslenskan ríkisborgararétt gerði hún ráð fyrir að ferlið yrði tiltölulega auðvelt í ljósi sögu sinnar og þess að hún væri með ríkisborgararétt frá Norðurlöndunum en allt kom fyrir ekki. „Þetta er svolítið skondið. Ég einmitt hélt þetta yrði ekkert mál,“ sagði Rita í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. „Pabbi og mamma voru líka bara alltaf með danskt ríkisfang. Þá var þetta flóknara, það þurfti að skipta um nafn og svona ýmislegt. Pabbi vildi það ekki. Þannig að þau héldu bara sínu ríkisfangi og ég einhvern veginn spáði voða lítið í því.“ Síðar hafi reglubreyting gert það að verkum að henni var gert heimilt að vera með tvöfalt ríkisfang. Þá hafi hún leitt hugann meira að þeim möguleika að vera bæði með danskan og íslenskan ríkisborgararétt. Rita ásamt eiginmanni sínum Ásmundi Pálmasyni.aðsend „Hvatinn að þessu var kannski líka að það hefur svolítið böggað mig seinustu árin að ég má ekki kjósa til forseta eða Alþingis.“ „Sérstaklega á seinustu árum þá fannst mér þetta leiðinlegt. Ég vildi gjarnan vera svolítið virk og geta lagt mitt atkvæði þangað sem ég vildi helst að það færi. Þannig að ég ákvað bara að gera þetta, drífa í þessu.“ „Þá tekur svolítið furðulegt dæmi við“ Fyrir tveimur árum hafi hún því farið til Útlendingastofnunar og lagt inn umbeðin gögn. Þeirra á meðal var búsetuvottorð, fæðingarvottorð, sakavottorð og vígsluvottorð. Eftir um ár hafi hún spurt um stöðuna á umsókninni og fengið þær upplýsingar að Útlendingastofnun væri enn að reyna að vinna sig í gegnum mikinn fjölda uppsafnaðra umsókna. Það hafi ekki verið fyrr en í febrúar síðastliðnum þegar henni var tilkynnt að mál hennar fengi málsmeðferð. Rita átti þá von á því að verða fljótlega tilkynnt að málið væri frágengið. „En þá tekur svolítið furðulegt dæmi við. Þeir vildu fá frekari gögn og þar á meðal að ég ætti að sanna tilvist mína á Íslandi, að ég sannarlega byggi hér,“ segir hún. „Hvað er verið að væna mig um?“ Þetta hafi Ritu fundist undarlegt en hún ákveðið að senda Útlendingastofnun skattaskýrslur fjögur ár aftur í tímann. „Ég fæ aftur bréf og þau hunsa það að ég hafi sent þetta og minnast ekkert á það. Þá vildu þau að ég opnaði bankareikninga fjögur ár aftur í tímann.“ Hún hafi furðað sig á þessu. „Ég er búin að sýna fram á að ég geti framfleytt mér. Ég er búin að sýna fram á með búsetuvottorði að ég bý hér, ég á lögheimili hér og hér er mín eign og hér bý ég með manninum mínum, en það var ekki nóg.“ „Þetta fannst mér rosa skrítið. Hvað er verið að væna mig um? Ég sendi til baka og ég segi bara: „Ég skil ekki. Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Mér fannst þetta mjög skrítið og mér er ekki svarað. Það er svo bara aftur beðið um þetta.“ „Ég skil að þeir vilji að fólk sýni fram á það að þau geti framfleytt sér á landinu. Ég var búin að gera það.“ Rita á hinsegin dögum.Aðsend Fékk fjóra virka daga til að svara Næst hafi hún fengið annað bréf frá Útlendingastofnun á miðvikudegi fyrir skírdag, tímasett klukkan fimm mínútur í fjögur. „Þar kemur fram að ég fái sjö daga til að bregðast við og ef ég sendi ekki þessi umbeðnu gögn og opna bankareikninga fjögur ár aftur í tímann þá verður umsókn mín metin á þeim gögnum sem liggja fyrir, sem ég tel nú hafa verið nægjanleg, allavega samkvæmt því sem beðið var um í upphafi.“ Við tók íslenskt páskahald með sínum rauðu dögum og á föstudagsmorgun fær Rita annað bréf. Umsókn hennar um íslenskan ríkisborgararétt hafði verið synjað. Rita tekur fram að einungis fjórir virkir dagar hafi þarna verið liðnir frá fyrra bréfi. Þarna hafi hún verið búin að fara í bankann og fá skriflega staðfestingu á því að það hafi verið reglulegar hreyfingar á reikningum hennar síðustu fjögur ár. Hún hafi því tjáð Útlendingastofnun að hún hafi fengið afhent umbeðin gögn daginn áður en synjunin barst, á fimmtudeginum í síðustu viku þegar þrír virkir dagar voru liðnir frá viðvöruninni. Einnig hafi hún spurt hvort það myndi hafa eitthvað upp á sig að skila inn þeim gögnum í ljósi þess að búið var að synja umsókninni og hvort Útlendingastofnun fylgdi ekki þeirri meginreglu að miða við virka daga þegar hún veitir fólki svarfrest. Þetta bréf sendi Rita á föstudeginum í síðustu viku en ekkert svar hafði borist frá Útlendingastofnun þegar hún ræddi reynslu sína í Reykjavík síðdegis. Fréttin hefur verið uppfærð.
Reykjavík síðdegis Ríkisborgararéttur Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira