Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Eiður Þór Árnason skrifar 19. apríl 2026 08:52 Það á að hlýna á morgun. Vísir/vilhelm Hægfara lægð á Grænlandshafi og vaxandi hæðarhryggur skammt fyrir austan land stjórna veðrinu á landinu í dag. Búast má við suðaustan 8 til 15 metrum á sekúndu suðvestan- og vestantil. Skýjað með köflum og líkur á smáskúrum en hægari vindur og bjart að mestu á Norður- og Austurlandi.
Þetta kemur fram í spá Veðurstofu Íslands. Það frysti allvíða í nótt en yfir daginn verður hiti yfirleitt á bilinu 4 til 11 stig. Á morgun verða sunnan 5 til 10 metrar á sekúndu og skýjað með köflum við vesturströndina. „Vindur verður því hægur og víða léttskýjað, en við vesturströndina verða einhver lágský viðloðandi fram eftir degi. Heldur hlýnandi,“ skrifar veðurfræðingur. Á þriðjudag sé svo útlit fyrir rólega suðvestanátt með björtu og mildu veðri. Þó er líklegt að þokusúld láti á sér kræla við vesturströnd landsins. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag og miðvikudag: Suðvestan 5-13 m/s á norðanverðu landinu, annars hægari vindur. Víða léttskýjað, en skýjað vestanlands með smásúld á köflum. Hiti 5 til 13 stig að deginum, hlýjast austantil.Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti): Vestan og norðvestan 3-10. Skýjað og yfirleitt þurrt um landið vestan- og norðanvert, en bjartviðri á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 5 til 12 stig yfir daginn, hlýjast suðaustanlands.Á föstudag: Norðaustlæg átt og víða þurrt veður, en lítilsháttar rigning eða slydda norðaustan- og austanlands og kólnar þar.Á laugardag: Austan- og suðaustanátt og þykknar upp sunnan- og vestanlands, en birtir upp á Norður- og Austurlandi. Hiti 1 til 10 stig, mildast suðvestantil.
Veður Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira