Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sunna Sæmundsdóttir skrifar 21. apríl 2026 12:54 Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir björgunarsveitarfólk vinna ómetanlegt starf. vísir/vilhelm Þingmanni Sjálfstæðisflokksins og syni hans var bjargað úr sjónum í Kollafirði eftir að kajakar þeirra ultu í gærkvöldi. Hann var ískaldur og orðinn máttlaus í höndum þegar hjálpin barst. Hann segir starf björgunarsveitanna ómetanlegt.
Lögregla greindi frá því í morgun að björgunarsveit hefði bjargað tveimur sem ultu kajak í gærkvöldi. Þeir hafi verið kaldir en ómeiddir og fluttir á bráðamóttöku til aðhlynningar. Um var að ræða Jón Pétur Zimsen þingmann Sjálfstæðisflokksins og sautján ára son hans sem höfðu farið út til veiða í Kollafirði á kajökum. Jón Pétur greindi frá lífsreynslunni á Facebook en fréttastofa sló á þráðinn til þess að heyra nánar af málinu. Hann segir að um röð atvika - eða óhappa hafi í raun verið að ræða. Jón Pétur lenti snemma í vandræðum með pedalspaða á bátnum og þegar hann beygði sig fram til þess að laga spaðann skapaðist ójafnvægi í bátnum. „Ég bara velti bátnum, sem ég hef aldrei gert áður, og enda í sjónum“ segir Jón Pétur. Hann synti þá til sonar síns og fór upp í kajakinn hans. Þar skapaðist einnig ójafnvægi og þrátt fyrir að þeir hafi reynt að jafna þyngdina í bátnum fór ekki betur en svo að hann valt einnig. „Þetta er svona röð óhappa og maður hefði mögulega getað farið meira varlega en auðvitað eru slysin bara þannig að ef maður vissi fyrir fram að þau væri að fara að gerast hefði maður gert hlutina öðruvísi.“ Sonur Jóns Péturs kom sér upp á kjöl bátarins en Jón Pétur hékk á honum og var í sjónum. „Við vorum í björgunarvestum en það var dálítið óþægilegt að ég var í smekkbuxum sem losnuðu af mér og runnu niður á hæla þannig ég var heftur í því að hreyfa fætur sundur og saman. Þannig það var svolítið erfitt að synda með það í kringum ökklana.“ Hann segir þetta hafa verið óþægilegt en að þeir hafi þó haldið ró sinni. Þrátt fyrir að sími Jóns Péturs hafi lent í sjónum gat hann hringt á Neyðarlínuna sem kallaði út björgunarsveit. Hjálpin barst þegar hann hafði verið í sjónum í um hálftíma. „Ég fann alveg að ég var farinn að missa mátt í útlimum því blóðið leitar inn í innri líffæri til að halda hita á hjarta, lungum og heila. Ég fann það í höndunum þegar ég var að reyna að vega mig upp á bátinn að maður svona missti takið og var ekki með almennilegt grip í fingrunum.“ Hitaður eins og grilluð samloka Sjúkrabílar biðu feðganna þegar þeim hafði verið komið í land og líkamshiti Jóns Péturs reyndist vera kominn niður í 32 gráður. Hann segir að vel hafi verið hugað að þeim á bráðamóttöku og voru þeir útskrifaðir um klukkustund eftir komu. „Maður var að reyna að láta ekki hafa mikið fyrir sér en var eiginlega kaffærður í hálfgerðu knúsi og hitaður upp eins og grilluð samloka,“ segir Jón Pétur kíminn. „Það var hitablástur og við fengum vökva í æð til þess að hita okkur upp líka.“ Hann segist uppfullur þakklætis eftir lífsreynsluna og segir fólkið í björgunarsveitum landsins dýrmætt. „Það er ómetanlegt að búa í landi þar sem svona vel er tekið á málum þegar eitthvað bjátar á og þar sem fólk er að gefa tíma sinn í að hjálpa öðrum í neyð. Það er ekki hægt að meta það í neinum verðmætum.“
Björgunarsveitir Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Fleiri fréttir Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Sjá meira