Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Samúel Karl Ólason skrifar 23. apríl 2026 00:08 Frá samkomunnum tveimur í dag og í kvöld. Grindvíkingar og aðrir virðast verulega reiðir yfir því að valkyrjurnar svokölluðu hafi hist heima hjá Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, í kvöld og borðað saman pítsu. Mörgum finnst það miður þar sem Kristrún hafi verið beðin um að mæta á íbúafund í Grindavík í dag. Kristrún tilkynnti á mánudaginn að hún kæmist ekki á fundinn og spilar kvöldverðurinn ekki þar inn í.
Þorgerður Katrín, utanríkisráðherra, birti mynd af þeim stöllum, sér, Kristrúnu Frostadóttir forsætisráðherra og Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra, á Facebook í kvöld með skilaboðunum: „Gleðilegt sumar, kæru landsmenn! Mættar í pizzupartý til Kristrúnar. Okkar besta forsætisráðherra.“ Þar hafa fjölmargir skrifað athugasemdir og gefið í skyn að Kristrúnu sé pítsan mikilvægari en Grindvíkingar. Þorgerður birti færsluna rétt fyrir klukkan níu í kvöld. Fundurinn í Grindavík hófst klukkan hálf fimm í dag og lauk um klukkan sex. Búið var að láta forsvarsmenn fundarins vita af því í upphafi vikunnar að Kristrún gæti ekki mætt á fundinn. Í tilkynningu frá forsvarsmönnum fundarins sem send var á fjölmiðla fyrr í dag stóð þó að Kristrún hefði verið „boðið að ávarpa fundinn og greina frá afstöðu ríkisstjórnarinnar til endurreisnar Grindavíkur.“ Kristín Ólafsdóttir, aðstoðarkona Kristrúnar, segir í samtali við fréttastofu að þátttaka Kristrúnar í fundinum hafi verið auglýst án samráðs við hana. Forsætisráðherra hafi ekki komist á fundinn í dag vegna persónulegra skuldbindinga á fundartímanum. „Kvöldverður með formönnum ríkisstjórnarflokkanna tengist á engan hátt fjarveru ráðherra á fundinum, enda átti hann sér stað talsvert eftir að íbúafundinum lauk.“ Þá segir hún að skipuleggjendur fundarins hafi verið látnir vita af því strax á mánudag að Kristrún kæmist því miður ekki en fundarboðið barst á föstudaginn. Í svari ráðherra til skipuleggjanda bauðst hún til að funda með bæjarstjórn Grindavíkur seinna í vikunni. Þá mun hún einnig funda með íbúasamtökunum Járngerði í næstu viku. Fréttastofa ræddi við nokkra gesti fundarins að honum loknum. Þá var kvartað yfir því að forsætisráðherra hefði ekki mætt. Einn sem rætt var við sagði að sífellt væri verið að snúa bakinu við Grindvíkingum. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, segir í svari við eina færslu á Facebook, eins og bent var á í grein DV, að pítsupartíið svokallaða hafi átt að hefjast klukkan átta í kvöld. Það hafi ekki spilað inn í það að Kristrún hafi ekki getað sótt fundinn. Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, er einn þeirra sem hefur gagnrýnt pítsupartíið og gefið til kynna að það hafi verið ástæðan fyrir því að Kristrún hafi ekki mætt á fundinn í dag. Í fréttum af fjölmennum íbúafundi í Grindavík kom fram að til hafi staðið að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra myndi kynna afstöðu ríkisstjórnarinnar til endurreisnar Grindavíkur á fundinum en hún afboðaði komu sína sökum anna. Annirnar voru pizzaparty með Toggu og Ingu. pic.twitter.com/N4nkK6AmeS— Björn Ingi Hrafnsson (@bjorningihr) April 22, 2026 Grindvíkingar hafa einnig gagnrýnt pítsupartíið.
Grindavík Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Eldgos á Reykjanesskaga Samfylkingin Flokkur fólksins Viðreisn Tengdar fréttir Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Grindvíkingar segja að þeim sé treystandi til að taka ákvarðanir um eigið líf. Þeir þakka landsmönnum og stjórnvöldum fyrir stuðninginn en krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi eðlilegrar endurreisnar bæjarins. 22. apríl 2026 18:44 Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Innlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Fleiri fréttir Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun „Ó, mér líður svo vel“ Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi Sjá meira
Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Grindvíkingar segja að þeim sé treystandi til að taka ákvarðanir um eigið líf. Þeir þakka landsmönnum og stjórnvöldum fyrir stuðninginn en krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi eðlilegrar endurreisnar bæjarins. 22. apríl 2026 18:44