Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 1. maí 2026 18:54 Kríuprik eru tilskilin frammi á Seltjarnarnesi snemma í apríl ef fram heldur sem horfir. Vísir/Vilhelm Helstu tegundir farfugla sem verpa hér verpa koma marktækt fyrr til landsins en áður. Í nýrri grein á Vísindavefnum fjallar líffræðingur um komutíma fjögurra algengra farfugla sem sýnir þessa þróun vel.
Jón Már Halldórsson líffræðingur fjallar um þessar breytingar á flutningum farfugla í grein sem birt var á Vísindavefnum í gær. Greinin er unnin upp úr gögnum frá Yann Kolbeinssyni líffræðingi sem ná yfir tímabilið frá árinu 1998 til 2026. Gögnin eru unnin og yfirfarin af Yann sjálfum og Hafrúnu Gunnarsdóttur. Sá ég spóa Spóinn hefur aldrei verið jafnsnemma á ferðinni eins og í ár og árið 2024 þar sem til hans sást 9. apríl. Minnst flýtti hann sér árið 1999 en þá sást ekki til hans á Íslandi fyrr en 26. apríl. Langalgengast er að hann láti fyrst sjá sig á tímablinu frá 15. til 21. apríl og að meðaltali í kringum 17. apríl. Spóinn kemur æ fyrr suður í flóa.Vísindavefur Spóar leggja í heljarinnar ferðalag á vorin en vetrarstöðvar þeirra eru á vesturströnd Afríku, aðallega í Senegal, Gambíu, Sierra Leóne og Gíneu-Bissaú. Á leiðinni millilenda þeir gjarnan á votlendissvæðum á Bretlandseyjum en þó hafa rannsóknir sýnt að þeir geta flogið í einum áfanga alla leið til Íslands. Álftirnar fyrr á ísagrárri spöng Álftin er fyrr á ferðinni en spóinn. Frá upphafi gagnatímabilsins hefur hún aldrei verið sneggri en árið 2014 þegar tilkynnt var um komu hennar 11. febrúar. Árið 2000 kom hún hins vegar ekki fyrr en 17. mars. Meðalkomutími hennar á þessu tímabili er 1. mars en hann hefur verið að færast fram undanfarin ár samkvæmt gögnunum. Hún kom til landsins 25. febrúar í ár. Komutíma álfta síðastliðna áratugi.Vísindavefur Álftir sem verpa á Íslandi ferðast ekki langar leiðir en vetrarstöðvar þeirra eru fyrst og fremst á Bretlandseyjum. Lítill hluti stofnsins, innan við fimm prósent að því er fram kemur í greininni, dvelur hér á landi allt árið um kring. Asi á gæsunum Heiðagæsin hefur einnig vetrarsetu á Bretlandseyjum, aðallega í Skotlandi og á Norður-Englandi. Gögnin sýna skýrt að hún kemur sömuleiðis marktækt fyrr til landsins í dag en áður fyrr. Komutími heiðagæsarinnar hefur hríðfallið undanfarna áratugi.Vísindavefur Á árunum í kringum aldamótin komu fyrstu heiðagæsirnar á tíambilinu 4.-11. apríl en síðustu ár hefur oftast sést til fyrstu heiðagæsanna á tímabilinu 20.-27. mars. Í vor kom hún fyrst til landsins 21. mars. Eftirspurn eftir kríuprikum eykst í apríl Krían er víðförlust allra dýra jarðar en á ári hverju flýgur hún frá vetrarstöðvum sínum við Suðurskautslandið alla leið til Íslands og svo aftur til baka. Flugið norður tekur um 40 daga en flugið suður um helmingi lengur. Í vor kom krían til landsins 8. apríl og hefur hún aldrei komið svo snemma áður, samkvæmt gögnunum. Jón Már segir sennilegt að góðar aðstæður á leiðinni hafi spilað þar stórt hlutverk. Á síðasta ári sást ekki til kríunnar fyrr en þann 25. apríl. Hin ótrúlega og árásargjarna kría þverar hnöttinn á hverju ári.Vísindavefur Meðaltalskomudagsetning á því tímabili sem hér er til skoðunar er 21. apríl en ef aðeins er horft á síðastliðinn áratug hefur krían nánast alltaf verið komin fyrir þann tíma.
Fuglar Umhverfismál Dýr Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira