Enski boltinn

Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópu­sæti

Valur Páll Eiríksson skrifar
Evanilson og Rayan höfðu ástæðu til að fagna.
Evanilson og Rayan höfðu ástæðu til að fagna. Robin Jones - AFC Bournemouth/AFC Bournemouth via Getty Images

Bournemouth er komið upp í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir öruggan 3-0 sigur á Crystal Palace í dag. Gestirnir áttu aldrei möguleika í leik dagsins.

Bournemouth komst yfir eftir aðeins tíu mínútna leik þökk sé klunnalegu sjálfsmark Jeffersons Lerma. Eli Junior Kroupi tvöfaldaði forystuna eftir rúmlega hálftíma leik af vítapunktinum.

Bournemouth leiddi verðskuldað 2-0 í hálfleik þar sem Crystal Palace tókst ekki að koma einu skoti á markið allan hálfleikinn.

Suðurstrendingar voru áfram með yfirburði eftir hlé og leiknum lauk 3-0 þökk sé marki Brassans unga Rayan tæpum stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Bournemouth fer þökk sé sigrinum upp fyrir Brentford í sjötta sæti deildarinnar sem veitir keppnisrétt í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×