Útlit fyrir kalda norðanátt fram eftir viku Atli Ísleifsson skrifar 4. maí 2026 07:07 Reikna má með frost víða um land að næturlagi. Vísir/Vilhelm Fram eftir vikunni er útlit fyrir kalda norðanátt á landinu og verður kaldi eða strekkingur algengur vindstyrkur. Það verða él á Norður- og Austurlandi og hiti um frostmark þar að deginum.
Á vef Veðurstofunnar segir að sunna heiða verði meira og minna bjart veður og hitinn gæti komist í um sex gráður í sólskini yfir daginn. Það verður svo víða frost um land að næturlagi. „Það er semsagt útlit fyrir vorhret fyrir norðan og austan fyrri helming vikunnar. Eins og spár líta út í dag er þó um minniháttar hret að ræða þegar litið er til vindstyrks og snjókomumagns. Eftir miðja vikuna virðist norðanáttin eiga að ganga niður, með aðgerðalitlu veðri en svölu. Um næstu helgi virðast langtímaspár gera ráð fyrir að hlýni með suðlægri átt og vætu sem einkum verður þá bundin við sunnan- og vestanvert landið á laugardegi,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag og miðvikudag: Norðan 5-13 m/s. Él á norðurhelmingi landsins og hiti kringum frostmark að deginum. Þurrt að mestu sunnantil og hiti að 6 stigum yfir daginn. Á fimmtudag: Norðlæg átt 3-10. Lítilsháttar él á norðaustanverðu landinu, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Áfram kalt í veðri. Á föstudag: Snýst í fremur hæga vestan- og suðvestanátt og víða bjart veður, en skýjað og stöku skúrir vestanlands. Hiti 1 til 8 stig að deginum, svalast austantil. Á laugardag: Suðvestlæg átt með rigningu, en þurrt að kalla á austanverðu landinu. Hlýnar í veðri. Á sunnudag: Útlit fyrir vestlæga eða breytilega átt. Skýjað en úrkomulítið. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast á Suðausturlandi en svalast norðaustanlands.
Veður Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Sjá meira