Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Jakob Bjarnar skrifar 5. maí 2026 10:33 Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er talin af veðsjúkum líklegust til að verða næsti borgarstjóri. Hvort þetta segir eitthvað til um hvort hægri sinnaðir séu gírugri í að veðja skal ósagt látið en hún telst langlíklegust. vísir/vilhelm Veðmálasíðan Epicbet hefur sett upp veðmál á það hvernig komandi borgarstjórnarkosningar fara. Samkvæmt stuðlum eru menn helst á því að Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna, verði næsti borgarstjóri.
Á Epicbet geta menn veðjað á allt sem helst og vitaskuld er pólitíkin þar engin undantekning. Þar hafa menn sett upp veðmál þar sem gefnar eru prósentur á það hvað flokkarnir eru að fá í prósentum talið og geta menn svo lagt undir. Þannig eru gefnar upp fyrir fram ákveðnar prósentur á til að mynda Flokk fólksins, 2,5 prósent atkvæða, og svo geta menn lagt undir. Ef þeir halda að Flokkur fólksins fái hlutfallslega meira af atkvæðum geta þeir veðjað á það og fá þá tvo í stuðul. Ef þeir halda að Flokkur fólksins fái meira er stuðullinn á að niðurstaðan verði 1,82, sem þýðir að ef þú leggur undir, segjum þúsund krónur og fáir þá niðurstöðu færðu 1.820 krónur til baka. Ef ekki eru þúsund krónurnar farnar í „money heaven“ og koma aldrei aftur. Þá er hægt að veðja á það hver verður næsti borgarstjóri. Á Epicbet eru menn helst á því að Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna verði fyrir valinu. Hún er með stuðulinn 1,70 á meðan oddviti Samfylkingarinnar, Pétur Marteinsson, er með stuðulinn 6,00 – sem þýðir að hann telst af Epicbet og þeim sem þar veðja, en stuðullinn breytist eftir því hvernig veðmálin falla, ekki mjög líklegur. Ari Edwald úr Miðflokki kemur næstur með stuðulinn 12,00, þá Björg Magnúsdóttir úr Viðreisn en hún er með 15,00 í stuðul. Sanna Magdalena Mörtudóttir hjá Vinstrinu er einnig með 15,00 í stuðul en restina rekur Einar Þorsteinsson úr Framsókn en stuðullinn á að hann verði borgarstjóri aftur er 20,00. Þetta þýðir að ef einhver leggur þúsund krónur á að sú verði niðurstaðan fær sá útborgaðar 20 þúsund krónur.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Fjárhættuspil Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira