Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Lovísa Arnardóttir og Kristján Már Unnarsson skrifa 6. maí 2026 22:33 Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóri vindmylluvers Landsvirkjunar við Vaðölduver. Vísir/Bjarni Einhverjir viðamestu þungaflutningar í sögu íslenska vegakerfisins hefjast í kvöld þegar risastórir vindmylluhlutar verða fluttir frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Kristján Már Unnarsson fréttamaður var í beinni frá Þorlákshöfn í kvöld.
Hann sagði einn spaða um 68 metra langan og á trukknum um 80 metra. Fyrsta skipið með spaða hafi komið 20. apríl og frá þeim tíma hafi fjögur skip til viðbótar komið til landsins. Í kvöld leggi af stað fimm trukkar úr Þorlákshöfn með spaðana og upp á hálendi. „Þetta er einn þriðji hluti af vindmyllunni,“ segir Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóri vindmyllugarðs Landsvirkjunar við Vaðölduver, en rætt var við hann í kvöldfréttum Sýnar. Hann segir þrjár nætur þurfa til að flytja heila vindmyllu til Vaðölduvers. Flutningarnir fari fram sex kvöld vikunnar og það eigi að flytja alls fjórtán vindmyllur á staðinn. Flutningarnir muni því taka sjö til tíu vikur og svo aftur næsta sumar. Alls 28 vindmyllur Fjórtán vindmyllur verða fluttar á þessu ári og aðrar fjórtán á því næsta, samtals 28 vindmyllur. Áætlað er að Vaðölduver verði komið í fullan rekstur seinni hluta árs 2027. Samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun um flutningana er flutningsleiðin um fimm sveitarfélög: Ölfus, Árborg, Flóahrepp, Ásahrepp og Rangárþing ytra. „Lestin leggur af stað í nótt,“ segir Sigurgeir og að lögreglan muni stýra umferð og er áætlað að flutningarnir, sem eru 130 kílómetrar, taki um fjórar klukkustundir og því ekið á aðeins um 30 til 50 kílómetra hraða. Það taki lengri tíma að fara í beygjur, hringtorg og önnur þröng svæði. Hann segir hægt að vaka eftir þeim í nótt en aðeins verði ekið í gegn og ekkert stoppað. Hann segir búið að undirbúa flutningana með fjölda aðila og þau séu tilbúin að takast á við þessa áskorun í nótt sem sé einn stærsti liðurinn í því að koma vindorkuverinu upp. Nánari upplýsingar um flutningana er að finna hér.
Orkumál Landsvirkjun Ölfus Vindorka Vindorkuver við Vaðöldu Árborg Flóahreppur Ásahreppur Rangárþing ytra Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira