Svona gekk að flytja vindmyllurnar Kristján Már Unnarsson skrifar 7. maí 2026 21:02 Fyrsti vindmylluspaðinn kominn í Vaðöldu snemma í morgun. Sultartangastífla, lengsta stífla Íslands, fyrir aftan. Landsvirkjun Fyrstu flutningar á risastórum vindmyllum í nótt um þjóðvegi Suðurlands gengu framar vonum og tók það flutningalestina um fimm klukkustundir að aka farminum frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga.
Í fréttum Sýnar mátti sjá þegar lest fimm flutningabíla lagði af stað úr Þorlákshöfn laust fyrir miðnætti en lögreglan á Suðurlandi stýrði þessum vandasömu flutningum. Lestin ók löturhægt yfir Óseyrarnesbrú yfir ósa Ölfusár og bara einn trukkur í einu en meðalhraðinn á þessari 130 kílómetra leið var um 25 kílómetrar á klukkustund. Hringtorgið austan við Selfoss var þó fyrsta stóra áskorunin enda vindmyllublöðin nærri sjötíu metra löng. Það reyndist þó auðvelt að fara þar í gegn en öll önnur umferð um torgið var stöðvuð á meðan. Ekið í gegnum hringtorgið í austurjaðri Selfoss.Landsvirkjun Tímasetning flutninganna um hánótt, að hluta um þjóðveg eitt, var einmitt valin með það í huga að þá væri þjóðvegaumferð í lágmarki enda ekki mikið pláss eftir á veginum til að mæta svona trukkum, hvað þá að aka framúr þeim. Meðal annars var farið yfir Þjórsárbrú, einnig löturhægt. Ekið yfir Þjórsárbrú.Landsvirkjun Þegar lestin var komin upp úr Landssveit, með Heklu í baksýn, var farið að birta af degi. Ofan Búrfells var ekið framhjá virkjunarmannvirkjum við Ísakot og vindmyllunum tveimur í Búrfellslundi en svo tók við þjóðvegarykið. Vindmyllulestin á Landvegi með Heklu í baksýn.Landsvirkjun Það var svo um hálffimmleytið í morgun sem áfangastað var náð við Vaðöldu, neðan Sultartangastíflu, en þá var sólin að koma upp. Næsti flutningur verður svo í nótt. Farnar verða alls 42 ferðir á næstu sjö til átta vikum til að flytja fjórtán vindmyllur. Lagt var stað úr Þorlákshöfn laust fyrir miðnætti.Landsvirkjun
Vindorkuver við Vaðöldu Vindorka Landsvirkjun Ölfus Rangárþing ytra Árborg Flóahreppur Tengdar fréttir Beygjur og hringtorg mesta áskorunin fyrir vindmyllulestina Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóri vindmyllugarðs Landsvirkjunar við Vaðölduver, segir hafa gengið mjög vel að flytja hluta vindmylla í Vaðölduver í nótt. Lögregla segir beygjur og hringtorg mestu áskorun en flutningarnir hafi gengið vel í nótt. 7. maí 2026 14:05 Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Einhverjir viðamestu þungaflutningar í sögu íslenska vegakerfisins hefjast í kvöld þegar risastórir vindmylluhlutar verða fluttir frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Kristján Már Unnarsson fréttamaður var í beinni frá Þorlákshöfn í kvöld. 6. maí 2026 22:33 Mest lesið „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira
Beygjur og hringtorg mesta áskorunin fyrir vindmyllulestina Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóri vindmyllugarðs Landsvirkjunar við Vaðölduver, segir hafa gengið mjög vel að flytja hluta vindmylla í Vaðölduver í nótt. Lögregla segir beygjur og hringtorg mestu áskorun en flutningarnir hafi gengið vel í nótt. 7. maí 2026 14:05
Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Einhverjir viðamestu þungaflutningar í sögu íslenska vegakerfisins hefjast í kvöld þegar risastórir vindmylluhlutar verða fluttir frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Kristján Már Unnarsson fréttamaður var í beinni frá Þorlákshöfn í kvöld. 6. maí 2026 22:33