„Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Lava Show Reykjavík 12. maí 2026 08:31 Í Lava Show í Reykjavík fá gestir að finna hitann frá 1.100 gráðu hrauni í návígi og sjá hvernig það kólnar og breytist fyrir framan augun á þeim – alveg eins og í alvöru eldgosi. Nú eru vinsælu fjölskyldusýningarnar í Lava Show í Reykjavík á íslensku komnar aftur, en aðeins í takmarkaðan tíma. Þegar glóandi hraunið flæðir inn í salinn skellur hitabylgjan á salnum. Börn og fullorðnir halla sér ósjálfrátt fram í sætunum og stara agndofa á appelsínugult hraunið sem rennur beint fyrir framan þau.
Svo byrja spurningarnar. „Er þetta alvöru hraun?“„Hvað er það heitt?“„Afhverju verður það svart að utan?“ „Krakkarnir spyrja langmest. Miklu meira en fullorðna fólkið,“ segir Ragnhildur Ágústsdóttir, stofnandi Lava Show, stundum kölluð „Lady Lava“, og brosir. „Hraunið er svo magnað og svo ólíkt öllu sem þau hafa séð áður að þau missa sig algjörlega í upplifuninni. Og þau læra heilmikið í leiðinni." Ragnhildur Ágústsdóttir sýnir hraun Skemmtilegasti jarðfræðitími í heimi Það er ekki á hverjum degi sem íslenskar fjölskyldur fá tækifæri til að setjast niður innandyra og horfa á glóandi hraun renna í aðeins nokkurra metra fjarlægð. Á Granda í Reykjavík hefur Lava Show boðið upp á slíka upplifun undanfarin ár og í vor verða aftur sérstakar sýningar á íslensku á laugardögum. Börn og unglingar eru heilluð af þeim fróðleik og skemmtun sem þau njóta á Lava Show. Margir gera sér ekki grein fyrir að upplifun á borð við Lava Show sé til í hjarta Reykjavíkur. Hraun frá Kötlugosinu 1918 er brætt upp í 1.100 gráður og látið renna fyrir framan áhorfendur í sýningu þar sem vísindi, náttúruöfl og skemmtun renna saman. „Þarna eru vísindin að gerast beint fyrir framan augun á fólki,“ segir Ragnhildur og bætir við: „þetta er sannkölluð veisla fyrir skilningarvitin“. Hraunmeistarinn – Lava Master - Madison MacKenzie sýnir eiginleika hraunsins á sýningu Lava Show. Á sýningum Lava Show fer fram stórkostlegt sjónarspil þar sem fegurð hraunsins fær að njóta sín til fulls. Hugmyndin frá upphafi var að sameina upplifun og fræðslu þannig að fólk gleymi því eiginlega að það sé að læra. Við köllum þetta stundum skemmtimennt“, segir hún og hlær. „Við viljum vera skemmtilegasti jarðfræðitími í heimi.“ Ragnhildur bætir við að margir foreldrar verði hissa á því hvað börnin muna lengi eftir á. „Þau eru enn að tala um þetta vikum og mánuðum síðar. Það er ekki á hverjum degi sem maður fær slík viðbrögð eftir fjölskylduferð.“ Ragnhildur Ágústsdóttir stofnandi Lava Show. Íslenskt hugvit sem er einstakt á heimsvísu Sagan á bak við Lava Show byrjaði í eldgosinu á Fimmvörðuhálsi árið 2010, þegar þau hjónin, Ragnhildur og Júlíus Ingi, horfðu agndofa á 200 metra hraunfoss steypast fram af bjargbrún. Hraunið er brætt í stórum bræðsluofni en bræðslumark hrauns er 1.100 gráður á Celsíus. „Þá fæddist hugmyndin um að fólk ætti að geta upplifað fegurð rennandi hrauns á öruggan hátt, innandyra. Flestir héldu að við værum gengin af göflunum og svona eftir á að hyggja var það líklega rétt," rifjar hún upp hlæjandi. Sýningin opnaði fyrst í Vík árið 2018 og á Granda í Reykjavík árið 2022. Síðan þá hefur Lava Show hlotið fjölda innlenndra og alþjóðlegra viðurkenninga fyrir nýsköpun og gæði enda er þetta eina hraunsýning veraldar. Íslensku sýningarnar slógu í gegn í fyrra Árið 2025 tók Lava Show á móti ríflega 200.000 gestum en langstærstur hluti þeirra eru erlendir ferðamenn. Þeim hjónum hefur þó alltaf langað að bjóða upp á íslenskar sýningar og prófuðu það í nokkur skipti síðasta vor með góðum árangri. Það er ekki á hverjum degi sem íslenskar fjölskyldur fá tækifæri til að setjast niður innandyra og horfa á glóandi hraun renna. „Það er svo gaman að sjá viðbrögðin frá Íslendingum eftir sýninguna,“ segir Ragnhildur. „Fólk heldur oft að það viti allt um eldgos af því að við búum á Íslandi. Svo kemur það hingað og verður alveg steinhissa hvað þetta er magnað.“ Þess vegna bjóðum við aftur upp á þetta núna í vor,“ bætir hún við. Hún segir margar fjölskyldur gera dag úr heimsókninni á Grandann. „Fólk kemur með börnin, ömmu og afa, fær sér að borða í hverfinu og nýtur dagsins saman. Það hefur verið ótrúlega skemmtilegt að sjá.“ Takmarkaður sýningafjöldi í sumar Sýningar á íslensku verða haldnar klukkan 13 og 15 á laugardögum til og með 13. júní, í sýningarsal Lava Show á Fiskislóð 73 á Granda í Reykjavík. Takmarkaður sætafjöldi er á hverri sýningu. Miðasala fer fram hér.
Mest lesið Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Atvinnulíf „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Viðskipti innlent Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Alvotech stóðst úttekt FDA Viðskipti innlent Gengi Alvotech tekur kipp Viðskipti innlent Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Viðskipti innlent Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Sjá meira