Ömurlegt að sjá skilaboð á veggnum sem geti ekki talist annað en pólitísk Freyja Þórisdóttir skrifar 11. maí 2026 21:27 Verkið Sólarslóð eftir listakonuna Theresu Himmer var afhjúpað við Hamraborg í Kópavogi þann 5. júlí árið 2019 en það var því orðið um sjö ára. Að sögn Elísabetar var einungis samið um að það fengi að vera á veggnum í þrjú ár. Facebook/Vefur Kópavogsbæjar Þrjátíu og þriggja metra langt listaverk sem hefur prýtt vegg í Hamraborg í Kópavogi síðustu sjö árin hefur vikið fyrir auglýsingu. Breytingin hefur vakið athygli meðal íbúa en meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið er Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands.
Í færslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni í dag segist henni hafa brugðið við breytinguna. Hún hafi áður setið í Lista- og menningarráði Kópavogs en situr nú í 14. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi. Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambands Íslands er ekki hrifin af nýja verkinu.Vísir/Anton Brink „Þar höfum við verið áfram um að fjölga útilistaverkum í bænum en ekki fækka þeim! Ef ég man rétt átti verkið aldrei að vera varanlegt en það hefur þó staðið í næstum sjö ár og var alls ekki illa farið – og það sem meira er hafði að mestu verið látið vera af öðrum veggjalistamönnum. Það hefur mér þótt aðdáunarvert. Ég á leið þarna um næstum daglega og hef því upplifað verkið við allar aðstæður og aldrei man ég eftir veggjakroti á því,“ segir Margrét í færslunni. Hún segist ósátt við það að „listaverk sem bærinn hefur varðveitt síðustu ár hafi vikið fyrir kosningaauglýsingu meirihlutans á kostnað bæjarbúa“ og þyki ömurlegt að sjá skilaboð sem að hennar mati geti ekki talist annað en pólitísk séu nú á veggnum. Fjórum árum lengur en til stóð Formaður Menningar- og mannlífsnefndar í Kópavogi, Elísabet B. Sveinsdóttir, segist sjálf ekki hafa frétt af þessu fyrr en í dag, þann 11. maí. „Þetta kom ekki inn á borð til okkar í nefndinni en mér skilst að þetta sé bara tímabundið og ég ímynda mér að það sé svo eitthvað nýtt sem kemur þarna eftir kosningar,“ segir Elísabet í samtali við blaðamann Vísis. Hún nefnir þó að upphaflega hafi verið samið um að verkið fengi að vera á sínum stað í þrjú ár. Það sé því löngu búið að uppfylla skilyrði samningsins enda séu komin um sjö ár síðan verkið var afhjúpað. Á vef Kópavogsbæjar stendur að verkið setji mikinn svip á umhverfið og sé í alfaraleið gangandi og akandi vegfarenda í miðbæ Kópavogs.
Styttur og útilistaverk Framsóknarflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Ungmenni réðust að konu með höggum og spörkum í Mjóddinni Innlent Framkvæmdastjóri Hopp vill ráða sófakappana Innlent Stór hópur foreldra taki skólaskyldu ekki alvarlega Innlent Rúmeninn náði 160 milljónum króna af Arion banka Innlent Ók gegn rauðu ljósi þegar kona á níræðisaldri lést Innlent Borgarfulltrúar til rannsóknar vegna gagnaleka Innlent Taldi sig mega fara með fimmtán ára stúlku um borð Innlent Upplausn á Ártúnshöfða og þolinmæði á þrotum Innlent Hafi svikið tugi milljóna úr íslenskum banka Innlent Keypti bíl fyrir peningana og flúði land með Norrænu Innlent Fleiri fréttir Kannast þú við Tommy? Ömurlegt að sjá skilaboð á veggnum sem geti ekki talist annað en pólitísk Kvæðið Lilja og Grettissaga meðal dýrgripa sem Svíar lána til Íslands „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Upplausn á Ártúnshöfða og þolinmæði á þrotum Ekið á tvö börn hvort í sínu sveitarfélaginu í dag Margir á leið í frí og það getur haft áhrif á kosninganótt Rekstraraðilar á Ártúnshöfða lýsa upplausnarástandi vegna borgaryfirvalda Borgarfulltrúar til rannsóknar vegna gagnaleka Aðstandendur „Kannabis Inc“ dæmdir í fangelsi „Það er ekki leiðtogi“ Guðmundur Ingi svarar fyrir umdeilt myndband Handtóku konu vopnaða hnífi Samfylkingin kveinkar sér undan stórskotahríð Viðreisnar Taldi sig mega fara með fimmtán ára stúlku um borð Lítið mál að halda jafnvægi á 4.500 króna sófa Ungmenni réðust að konu með höggum og spörkum í Mjóddinni Bíða með breytingar eftir liðsskipti Helga Áss fram yfir kosningar Hátt í 40 prósenta aukning í kosningaþátttöku utan kjörfundar Stjórnsýslan hafi lagt undir sig landið og miðin „Mér finnst það ekki siðferðislega rétt“ Ók gegn rauðu ljósi þegar kona á níræðisaldri lést Keypti bíl fyrir peningana og flúði land með Norrænu Rúmenskur bankaræningi og margir kjósa utan kjörstaðar Flugi seinkað vegna forfalla í áhöfn Vilja sinna löggæslu í Grímsey og Hrísey með drónum Vilja fjölga hólmum í Reykjavíkurtjörn og friðlýsa fjöru við Skerjafjörð og Ægisíðu „Ekki frekar en þegar Dagur var í framboði“ Framkvæmdastjóri Hopp vill ráða sófakappana Sjö vilja embætti skólameistara FB Sjá meira