Ísland hefur sagt sig frá orkusáttmálanum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 11. maí 2026 23:44 Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Vísir/Ívar Fannar Tilkynnt hefur verið um úrsögn Íslands frá samningi um orkusáttmála (Energy Charter Treaty, ECT) í ljósi þess að samningurinn gengur gegn stefnu ríkisstjórnarinnar um orkufullveldi og sjálfsákvörðunarrétt íslenskra stjórnvalda í orkumálum. Ráðherra segir engan samning hafa orðið grundvöllur eins margra gerðarmála alþjóðlegra stórfyrirtækja gegn fullvalda ríkjum.
Þetta kemur meðal annars fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Úrsögnin tekur gildi árið 2027 í samræmi við ákvæði samningsins og með því falla niður allar greiðslur til skrifstofu samningsins. Þar segir að samningurinn hafi verið undirritaður árið 1994 og fullgiltur af Íslands hálfu árið 2015. Markmið hans sé meðal annars að tryggja fjárfestavernd og liðka fyrir óheftum viðskiptum með orku yfir landamæri. Með fullgildingu samningsins hafi íslensk stjórnvöld lýst yfir vilja til að stuðla að frjálsum viðskiptum með orkuauðlindir og samvinnu á sviði orkuflutninga þvert á landamæri. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hafi sett af stað vinnu við að undirbúa úrsögn Íslands árið 2025 með hliðsjón af stefnu Íslands í orku- og loftslagsmálum. Af því tilefni hafi ráðuneytið sett af stað samráðsferli en í því ferli hafi ekki komið fram sjónarmið frá hagsmunaaðilum sem mæltu fyrir áframhaldandi aðild Íslands. „Á undanförnum árum hafa Evrópusambandið og að minnsta kosti 10 Evrópuríki sagt sig frá samningnum. Þykir samningurinn úreltur og samræmast illa nútímaáherslum í loftslags- og orkumálum. Samningurinn veitir fyrirtækjum rétt til að höfða mál gegn ríkjum fyrir sérstökum lokuðum gerðadómi, utan hefðbundins dómskerfis, vegna aðgerða sem geta haft áhrif á arðsemi fjárfestinga þeirra,“ segir í tilkynningunni. Á annað hundrað gerðarmál gegn ríkjum hafi verið höfðuð á grundvelli samningsins, meðal annars vegna aðgerða sem ríki hafi gripið til vegna orkuskipta. Enginn alþjóðlegur viðskipta- eða fjárfestingarsamningur hafi orðið grundvöllur eins margra gerðarmála fyrirtækja gegn ríkjum. „Þátttaka Íslands í samningnum hefur verið lítil sem engin frá upphafi. Ísland hefur ekki tekið virkan þátt í starfsemi hans og engar vísbendingar eru um að íslensk fyrirtæki hafi nýtt sér ákvæði samningsins, hvorki hvað varðar fjárfestavernd né úrlausn ágreiningsmála. Þá hafa hvorki íslensk stjórnvöld né fyrirtæki verið aðilar að gerðarmálum á grundvelli samningsins. Það er mat ráðuneytisins að samningurinn sé ekki í samræmi við áherslur Íslands í orku- og loftslagsmálum.“
Orkumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Erlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Lítið breyst á fimmtán árum Innlent Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Innlent Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Erlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Fleiri fréttir Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Sjá meira